Arnarlax undirbýr útboð á nýju hlutafé

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði.
Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði.

„Við finn­um fyr­ir mikl­um áhuga á að fjár­festa í blágræna hag­kerf­inu og telj­um tím­ann vera rétt­an til að styrkja fé­lagið enn frek­ar fyr­ir þau verk­efni sem standa fyr­ir dyr­um,“ seg­ir Kjart­an Ólafs­son, formaður stjórn­ar fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax á Vest­fjörðum.

Fé­lagið und­ir­býr skrán­ingu á Merk­ur-markaðinn í kaup­höll­inni í Osló sem og útboð á nýju hluta­fé. Hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins hækkuðu um 9,5% í gær, eft­ir til­kynn­ing­una og var verðið komið í 115 norsk­ar krón­ur á hlut.

Arn­ar­lax var fyr­ir tæpu ári skráð á NOTC-lista kaup­hall­ar­inn­ar í Osló fyr­ir minni fyr­ir­tæki. Kjart­an seg­ir að það hafi reynst fé­lag­inu og hlut­höf­um þess vel. Merk­ur-markaður­inn geri meiri kröf­ur til fé­lags­ins um upp­lýs­inga­gjöf og veiti fjár­fest­um betri um­gjörð. Hluta­bréf sem þar eru skráð höfði til breiðari hóps fag­fjár­festa. Stærri og þróaðri fjár­fest­ar líti meira til þess markaðar, ekki síst í vaxtar­fyr­ir­tækj­um í blágræna hag­kerf­inu. Í um­fjöll­un um útboðið í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Kjart­an að hugað verði að því á næsta ári að skrá hluta­bréf­in á aðall­ista kaup­hall­ar­inn­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: