Stofnfiskur hefur hlotið verðlaun bresku fiskeldissamtakana sem birgir ársins (e. supplier of the year). Verðlaunin heita á frummálinu „Aquaculture Awards“ og þar eru veittar viðurkenningar í ýmsum flokkum til þeirra fyrirtækja sem skara fram úr á sínu sviði í fiskeldi. Verðlaunaafhendingin var rafræn í ár vegna kórónuveirunnar.
Í dag er Stofnfiskur, sem er eigu Benchmark Genetics, einn stærsti framleiðandi á laxahrognum í heiminum. Vorið 2019 var lokað fyrir allan útflutning á laxahrognum frá Noregi til Skotlands vegna þess að norskur laxaiðnaður missti vottun sína til útflutnings. Stofnfiskur hefur verið að byggja upp næga framleiðslugetu til að framleiða allt að 200 milljón hrogn sem duga til að framleiða um 500.000 tonn af laxi.
Í tilkynningu er haft eftir Jónasi Jónassyni, framkvæmdastjóra Stofnfisks, að vegna Covid-19 hafi ekki verið auðvelt að sinna skoska markaðnum. „Við erum stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu á okkar starfi.“