Þorsteinn Halldórsson, sem fékk dóm upp á þriggja og hálfs árs hegningarauka í Héraðsdómi Reykjaness í síðasta mánuði fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti, hefur áfrýjað málinu til Landsréttar. Þetta má sjá á málaskrá dómstólsins.
Með dóminum í ágúst hafði Þorsteinn verið dæmdur í samtals níu ára fangelsi fyrir brot gegn tveimur piltum, en áður hafði hann hlotið fimm og hálfs árs dóm fyrir brot gegn öðrum pilti. Héraðsdómur hafði áður dæmt hann í sjö ára fangelsi í málinu, en Landsréttur mildaði þann dóm niður í fimm og hálft ár. Engu að síður er um er að ræða einn þyngsta dóm sem sakborningur hefur hlotið fyrir kynferðisbrot hérlendis.
Í málinu sem nú er fyrir dómstólum var Þorsteinn ákærður fyrir 50 kynferðisbrot gegn piltinum, en brotin stóðu meðan pilturinn var á aldrinum 14 til 17 ára. Þá sendi Þorsteinn kynferðislegar myndir af piltinum til óþekktra aðila á samfélagsmiðlum.
Voru brot Þorsteins keimlík þeim brotum sem hann hafði verið dæmdur fyrir í fyrra málinu.
Foreldrar piltsins sem Þorsteinn var í fyrra dæmdur fyrir að hafa brotið á ræddu ítarlega um málið í samtali við mbl.is í febrúar árið 2018, þar sem þau lýstu sinni reynslu af því ofbeldi sem Þorsteinn beitti son þeirra. Þar sögðu foreldrarnir m.a. að Þorsteinn hefði útvegað drengnum fíkniefni og setið um hann.