Fyrstu laxaseiðin flutt frá Rifósi

Seiðin voru flutt með tankbíl úr Kelduhverfi og dælt í …
Seiðin voru flutt með tankbíl úr Kelduhverfi og dælt í brunnbátinn. m,bl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fyrstu laxa­seiðin sem fram­leidd eru fyr­ir Fisk­eldi Aust­fjarða í eld­is­stöð fyr­ir­tæk­is­ins, Ri­fósi í Keldu­hverfi, eru á leiðinni aust­ur í Beru­fjörð.

Brunn­bát­ur­inn Dønna­laks sótti 170 þúsund seiði til Húsa­vík­ur og verða þau sett út í kví­ar í Beruf­irði. Seiðin voru flutt með tankbíl úr Keldu­hverfi og dælt í brunn­bát­inn.

Fisk­eldi Aust­fjarða keypti eld­is­stöðina og er að byggja hana upp sem og seiðaeld­is­stöð við Kópa­sker. Bleikja hef­ur aðallega verið alin í Ri­fósi und­an­far­in ár en því verður hætt og byrjað er að fram­leiða laxa­seiði þar í staðinn.

Guðmund­ur Gísla­son stjórn­ar­formaður seg­ir að búið sé að byggja 1.700 fer­metra eld­is­hús með stór­um tönk­um. Ætl­un­in sé að byggja upp fram­leiðslu­getu fyr­ir fjór­ar millj­ón­ir seiða.

Seg­ir Guðmund­ur að mik­il þekk­ing sé á svæðinu því þar hafi lengi verið stundað fisk­eldi. Einnig mikið af vatni.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: