25. haustrallið hafið

Múlaberg SI tekur þátt í haustralli Hafrannsóknastofnunar ásamt Árna Friðrikssyni.
Múlaberg SI tekur þátt í haustralli Hafrannsóknastofnunar ásamt Árna Friðrikssyni. Ljósmynd/Rammi

Hið ár­lega haustr­all er hafið, en í því felst stofn­mæl­ing botn­fiska og stend­ur yfir næstu fjór­ar vik­ur, að því er fram kem­ur á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Um er að ræða 25. skipti sem stofn­un­in stend­ur að stofn­mæl­ingu botn­fiska að haust­lagi og hef­ur hún verið fram­kvæmd með sam­bæri­leg­um hætti á hverju ári síðan 1996.

Tvö skip taka þátt í verk­efn­inu og er það ann­ars veg­ar tog­ar­inn Múla­berg SI og hins veg­ar rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son. Sjö til tíu rann­sókna­menn eru á hverju skipi auk áhafn­ar.

Fram kem­ur á vef stofn­un­ar­inn­ar að til stend­ur að toga á rúm­lega 370 stöðum á hafsvæðinu um­hverf­is Ísland og að svæðinu er skipt í grunn- og djúp­slóð og er togað niður á allt að 1.300 metra dýpi.

„Helsta mark­mið er að fylgj­ast með breyt­ing­um á stofn­stærð, aldri, fæðu, ástandi og út­breiðslu botn­fisk­teg­unda við landið. Erfðasýni verða tek­in úr grá­lúðu sem verður einnig merkt. At­hug­an­ir verða gerðar á botn­dýr­um og mat lagt á magn ým­is­kon­ar rusls á sjáv­ar­botni.“

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson.
Haf­rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son. mbl.is/​Sig­urður Bogi
mbl.is