Nafnbreyting hjá eiganda

Lax unninn fyrir pökkun í laxasláturhúsi Arnarlax á Bíldudal.
Lax unninn fyrir pökkun í laxasláturhúsi Arnarlax á Bíldudal. mbl.is/Helgi Bjarnason

Ákveðið var á hlut­hafa­fundi Arn­ar­lax AS að breyta heiti fé­lags­ins í Icelandic Salmon AS.

Kem­ur þetta fram í til­kynn­ingu stjórn­ar fé­lags­ins til Notc-hluta­bréfa­markaðar­ins í kaup­höll­inni í Osló þar sem hluta­bréf fé­lags­ins eru skráð. Kjart­an Ólafs­son, formaður stjórn­ar Arn­ar­lax, gef­ur þá skýr­ingu í skila­boðum að nafn­breyt­ing­in nái aðeins til hins norska eign­ar­halds­fé­lags Arn­ar­lax.

Arn­ar­lax vinn­ur að skrán­ingu á Merk­ur-hluta­bréfa­markaðnum í kaup­höll­inni í Osló og hyggst bjóða út ný hluta­bréf í því sam­bandi. Aukn­ing­in er um 10% nú­ver­andi hluta­fjár. Verð hlut­anna hef­ur ekki verið ákveðið.

Hluta­bréf fé­lags­ins standa nú í 130 norsk­um krón­um á Notc-markaðnum og er verðmæti skráðra hluta­bréfa þar um 3,5 millj­arðar norskra króna. Sam­svar­ar það um 52 millj­örðum ís­lenskra króna, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: