Framleiðsla Laxa meira en tvöfaldast

Mikil umferð er við sjókvíar Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Auk …
Mikil umferð er við sjókvíar Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Auk vinnu- og brunnbáta fyrirtækins liggja kvíarnar við siglingaleið flutningaskipa.

Lax­ar fisk­eldi geta meira en tvö­faldað fram­leiðslu sína á laxi í Reyðarf­irði eft­ir að fyr­ir­tækið fékk starfs- og rekstr­ar­leyfi til aukn­ing­ar starf­sem­inn­ar. Þegar leyf­in verða full­nýtt, sem stefnt er að eft­ir tvö eða þrjú ár, verða út­flutn­ings­verðmæti afurðanna 12,5 til 15 millj­arðar kr.

Lax­ar fengu starfs- og rekstr­ar­leyfi frá Um­hverf­is­stofn­un og Mat­væla­stofn­un fyr­ir 10 þúsund tonna viðbót við fram­leiðsluna í Reyðarf­irði. Unnið hef­ur verið í átta ár að öfl­un leyf­anna. Fyr­ir var fyr­ir­tækið með 6 þúsund tonna fram­leiðslu­heim­ild og get­ur því aukið fram­leiðsluna í 16 þúsund tonn.

„Þetta er ein­stak­lega kær­komið og gríðarlega mik­il­vægt fyr­ir fé­lagið. Við vor­um far­in að gera okk­ur von­ir um að leyf­in myndu klár­ast í haust. Því var ákveðið á vor­dög­um að fara í fjár­fest­ing­ar til næstu tólf mánaða til að mæta vænt­an­legri aukn­ingu. Við fjár­fest­um í seiðaeld­is­stöðvum okk­ar og kaup­um á búnaði fyr­ir sjó­eldið,“ seg­ir Jens Garðar Helga­son fram­kvæmda­stjóri. Stór fóðurprammi sem fyr­ir­tækið hef­ur fest kaup á er vænt­an­leg­ur í vor.

Jens Garðar Helgason.
Jens Garðar Helga­son. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Að sögn Jens Garðars nem­ur fjár­fest­ing­in í seiðastöðvum fé­lags­ins í Ölfusi um 1,3 millj­örðum króna og millj­arði í sjó­eld­is­deild­inni í Reyðarf­irði. „Þess utan hef­ur þurft að fjölga starfs­fólki þónokkuð. Nú er verið að aug­lýsa þrjár nýj­ar stöður í Ölfusi og fjöldi starfs­manna hér fyr­ir aust­an mun nálg­ast fjórða tug­inn þegar búið verður að ráða í all­ar stöður á næsta ári,“ seg­ir Jens Garðar. Hann bæt­ir því við að Bú­landstind­ur á Djúpa­vogi sem fé­lagið á aðild að sé að fjár­festa fyr­ir um hálf­an millj­arð á þessu ári, meðal ann­ars í nýj­um flokk­ur­um frá Mar­el og öðru vél­menni frá Sam­ey, til að mæta auk­inni vinnslu á kom­andi árum.

Reiknað er með að fram­leiðslan í ár nemi níu þúsund tonn­um og hún mun auk­ist smám sam­an þangað til leyf­in verða full­nýtt árið 2023.

Reyðarfjörður þolir 20 þúsund tonna fram­leiðslu, sam­kvæmt burðarþols­mati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Hins veg­ar er leyfð há­marks­fram­leiðsla 18 þúsund tonn, með skil­yrðum um stærð seiða, sam­kvæmt áhættumati sömu stofn­un­ar. Jens Garðar seg­ir næstu skref ekki ákveðin en mark­miðið sé þó að nýta það sem Reyðarfjörður get­ur gefið af sér.

Áskor­an­ir á mörkuðum

Slátrun upp úr kví­un­um í Reyðarf­irði hefst í vik­unni, eft­ir hlé vegna upp­setn­ing­ar nýs búnaðar í slát­ur­hús­inu á Djúpa­vogi.

Spurður um stöðuna á mörkuðum fyr­ir lax seg­ir Jens að þar séu áskor­an­ir vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins. Bjart­sýni hafi ríkt í sum­ar um að markaður­inn væri að taka við sér en bylgj­an sem nú geng­ur yfir Evr­ópu hafi þrengt að hót­el­um, veit­inga­stöðum og veisluþjón­ustu. Því hafi starfs­menn þurft að leggja sig ennþá bet­ur fram í sölu­mál­un­um en áður.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: