Stofninn í Arnarfirði nálægt sögulegu lágmarki

Rækju landað úr Ísafjarðardjúpi árið 2016. Ráðlagt er að aðeins …
Rækju landað úr Ísafjarðardjúpi árið 2016. Ráðlagt er að aðeins verður heimilt að veiða 586 tonn af rækju á vertíðinni. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Haf­rann­sókna­stofn­un legg­ur til að að leyfðar verði veiðar á 184 tonn­um af rækju í Arnar­f­irði og 586 tonn­um í Ísa­fjarðar­djúpi á vertíðinni 2020/​2021, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Þá seg­ir að ráðlegg­ing­arn­ar byggi á niður­stöðum könn­un­ar á ástandi inn­fjarðarrækju­stofna sem fram fór dag­ana 28. sept­em­ber til 4. októ­ber.

Fram kem­ur að stofn­vísi­tala rækju í Arnar­f­irði reynd­ist ná­lægt sögu­legu lág­marki en yfir skil­greind­um varúðarmörk­um, auk þess var rækj­an þar smærri en und­an­far­in ár. Meira var af þorski og ýsu í Arnar­f­irði en und­an­far­in ár.

Rækj­an í Ísa­fjarðar­djúpi var und­ir meðallagi en yfir skil­greind­um varúðarmörk­um og var út­breiðsla henn­ar að mestu tak­mörkuð við svæðið innst í Ísa­fjarðar­djúpi. Þá seg­ir í til­kynn­ing­unni að nýliðun­ar­vísi­tala rækju var langt und­ir meðallagi árin 2016 til 2020. Þá hef­ur vísi­tala þorsks í Ísa­fjarðar­djúpi farið lækk­andi frá ár­inu 2012 en vísi­tala ýsu hef­ur hald­ist há frá 2004 og var tölu­vert af ýsu eins árs og eldri á svæðinu í októ­ber 2020.

Að þessu sinni var ekki kannað ástand rækju­stofna í Húna­flóa, Skagaf­irði, Skjálf­anda og Öxarf­irði, en und­an­far­in ár hef­ur ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar verið að eng­ar veiðar séu stundaðar á þess­um svæðum vegna slæms ástands stofn­anna.

mbl.is