Fjárfesting Samherja í Helguvík óráðin

Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, segir hugsanleg áform um …
Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, segir hugsanleg áform um landeldi í Helguvík aðeins til skoðunar á þessu stigi. Skapti Hallgrímsson

„Við erum búin að und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á eign­um Norðuráls og við erum með þetta í frum­at­hug­un til að kanna mögu­leik­ana. Við erum að ræða við bæj­ar­yf­ir­völd og skoða for­send­ur fyr­ir upp­bygg­ingu,“ seg­ir Jón Kjart­an Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja fisk­eld­is, í sam­tali við 200 míl­ur um hugs­an­lega upp­bygg­ingu lax­eld­is­stöðvar á landi á lóð Norðuráls í Helgu­vík.

Þá hafa átt full­trú­ar Sam­herja fisk­eld­is átt fund með bæj­ar­stjór­um Reykja­nes­bæj­ar og Suður­nesja­bæj­ar vegna máls­ins.

Spurður um hversu stóra fjár­fest­ingu sé að ræða ef af áformun­um verður, svar­ar Jón Kjart­an að það sé erfitt að greina frá á þessu stigi. „Það velt­ir á mörg­um for­send­um varðandi mögu­leik­ana. Það eru grunn­for­send­urn­ar sem ráða stærðinni af fjár­fest­ing­unni.“ Hann seg­ir enga end­an­lega ákvörðun vera tekna um upp­bygg­ingu eld­is­stöðvar­inn­ar og í ít­rek­ar að þetta sé aðeins til skoðunar.

Byggingar sem áttu að hýsa álver kunna að verða notaðar …
Bygg­ing­ar sem áttu að hýsa ál­ver kunna að verða notaðar í land­eldi. mbl.is/​Golli

„Við ætl­um að skoða þetta á næstu vik­um,“ út­skýr­ir Jón Kjart­an og bæt­ir við að gert sé ráð fyr­ir að at­hug­un­inni verði lokið fyr­ir ára­mót.

Í til­kynn­ingu sem Sam­herja send­ir í dag er bent á að Sam­herji fisk­eldi er þegar með eld­is­stöð á Stað við Grinda­vík og eld­is­stöð á Vatns­leysu­strönd auk slát­ur­hús og vinnslu í Sand­gerði. Þá hafi fisk­eldi fyr­ir­tæk­is­ins einkum verið á landi og sér­staklaga verið lögð áhersla á fram­leiðslu bleikju en Sam­herji fisk­eldi er stærsti fram­leiðandi bleikju í heim­in­um með tæp­lega 3.800 tonn ár­lega, en fram­leiðir ein­ung­is 1.500 tonn af laxi.

mbl.is