Markaðsverð á laxi heldur áfram að lækka

Meðalverð á eldislaxi hefur lækkað undanfarnar vikur.
Meðalverð á eldislaxi hefur lækkað undanfarnar vikur. mbl.is/Helgi Bjarnason

Meðal­verð á eld­islaxi lækkaði um 5,03% í síðustu viku (viku 41) miðað við meðal­verð á markaði vik­una á und­an sam­kvæmt lax­vísi­tölu Nas­daq og nam meðal­verð við lok vik­unn­ar 43,39 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 656 ís­lenskra króna.

Þá hef­ur meðal­verð lækkað um 9,23% á síðastliðnum fjór­um vik­um og 9,73% á und­an­förn­um tólf vik­um.

Ef litið er til lax í al­geng­ustu slát­ur­stærð, þrjú til sex kíló, lækkaði meðal­verð um 6,43% í viku 41 og hef­ur verð lækkað um 7% á fjór­um vik­um en 8,85% á und­an­förn­um tólf vik­um. Meðal­verð á laxi í þess­ari stærð nam 44,03 norsk­um krón­um, jafn­v­irði 666 ís­lenskra króna á kíló.

mbl.is