Gildi eignast rúm 5% í Icelandic Salmon

Starfsmenn í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal pakka laxi til útflutnings. …
Starfsmenn í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal pakka laxi til útflutnings. Fjármagnið sem fékkst með hlutafjárútboði félagsins á meðal annars að fjárfesta í starfseminni þar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gildi líf­eyr­is­sjóður eignaðist um 5,5% hlut í Icelandic Salmon AS (Arn­ar­lax) í hluta­fjárút­boði fé­lags­ins. Alls keypti Gildi hluti fyr­ir 2,9 millj­arða ís­lenskra króna eða um 30% hlut­anna sem voru til sölu. Þá keypti sjóðstýr­inga­fyr­ir­tæki Ari­on banka, Stefn­ir, hluti fyr­ir rúm­lega millj­arð.

Í heild seld­ust 5,6 millj­ón­ir hluta í Icelandic Salmon í útboðinu fyr­ir sam­tals 647 millj­ón­ir norskra króna jafn­v­irði 9,6 millj­arða ís­lenskra króna, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu Salm­ar, móður­fé­lags Icelandic Salmon, til norsku kaup­hall­ar­inn­ar.

Gert er ráð fyr­ir að nýta fjár­magnið til frek­ari upp­bygg­ingu starf­semi Icelandic Salmon hér á landi, meðal ann­ars með upp­færslu búnaðar í slát­ur­húsi fé­lags­ins á Bíldu­dal.

Til sölu voru 4.347.826 nýir hlut­ir í Icelandic Salmon auk 1.281.518 hlut­ir sem hlut­haf­ar lögðu í útboðið. Fé­lag Kjart­ans Ólafs­son­ar, stjórn­ar­for­manns Icelandic Salmon, Gyða ehf. seldi 281.518 hluti og á félgið nú 3,2% hlut í Icelandic Salmon. Það var síðan norska Pact­um AS sem seldi millj­ón hluti og á það fé­lag nú um 2,7% í fé­lag­inu.

Útboðið er hluti af áætl­un um að skrá fé­lagið á Merk­ur-markað kaup­hall­ar­inn­ar í Osló.  Þá seg­ir í til­kynn­ingu Salm­ar að útboðið hafi verið vel heppnað og að gert sé ráð fyr­ir að viðskipti með bréf Icelandic Salmon á markaði geti haf­ist 27. októ­ber.

mbl.is