Thorben og Páll nýir skipherrar gæslunnar

Thorben Jósef Lund t.v. og Páll Geirdal t.h. taka við …
Thorben Jósef Lund t.v. og Páll Geirdal t.h. taka við sem fastir skipherrar um næstu áramót. Mynd/Samsett

Frá næstu áramótum taka taka tveir nýir skipherrar til starfa hjá Landhelgisgæslunni en það eru þeir þeir Thorben Jósef Lund og Páll Geirdal. Um áramótin mun einnig Halldór Nellett, skipherra á Þór, láta af störfum, en hann hefur starfað fyrir Landhelgisgæsluna um áratugaskeið.

Fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar að með breytingunum munu þrír skipherrar verða á varðskipunum. Einar H. Valsson verður áfram skipherra á varðskipinu Tý, Thorben Lund verður skipherra á báðum skipum og Páll Geirdal verður skipherra á varðskipinu Þór.

Þeir Thorben og Páll eru sagðir eiga sér langan og farsælan feril hjá Landhelgisgæslunni. Thorben hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1984 og Páll árið 1986. „Þeir störfuðu báðir sem sigmenn á þyrlum Landhelgisgæslunnar, hafa undanfarin ár verið yfirstýrimenn og hafa leyst af sem skipherrar á varðskipum Landhelgisgæslunnar frá árinu 2000.“

Halldór B. Nellett skipherra í brú Týs. Hann mun láta …
Halldór B. Nellett skipherra í brú Týs. Hann mun láta af störfum um áramót. Ljósmynd/Hilmar Snorrason



mbl.is