Högg á laxamarkað

Bíldudalur. Vænum vestfirskum gæðalaxi pakkað fyrir Evrópumarkað.
Bíldudalur. Vænum vestfirskum gæðalaxi pakkað fyrir Evrópumarkað.

„Mér sýn­ist að menn séu al­mennt að bú­ast við því að verðið verði lágt næstu miss­er­in og þetta geti orðið jóla- og páska­vertíð með öðru sniði en verið hef­ur und­an­far­in ár,“ seg­ir Kjart­an Ólafs­son, stjórn­ar­formaður Arn­ar­lax.

Verð á eld­islaxi lækkaði í síðustu viku og sam­kvæmt frétt­um norskra vef­miðla er verðið sem ein­staka selj­end­ur eru að fá það lægsta í fimm ár. Ástæðan er viðbrögð markaðar­ins við auk­inni út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar í Evr­ópu og út­göngu­banni og lok­un veit­ingastaða vegna ástands­ins.

Vet­ur­inn er mik­il­væg­asti sölu­tími laxa­af­urða, ekki síst aðventa, jól, fasta og pásk­ar. Á sama tíma er fram­leiðslan að nálg­ast há­mark þannig að mikið fram­boð er af laxi. Meðal­verð á laxi var 46 norsk­ar krón­ur á kílóið í 42. viku árs­ins sem svar­ar til um 700 króna ís­lenskra. Vís­bend­ing­ar eru um að verðið hafi lækkað tals­vert í síðustu viku og hafi farið und­ir 40 kr. norsk­ar sem svar­ar til um 600 kr. ís­lenskra.

„Þró­un­in mun skýr­ast bet­ur í þess­ari viku. Ég hef þá trú að mat­væli muni alltaf finna sér leið inn á markaðinn. Menn laga sig að nýj­um aðstæðum. Það hef­ur sýnt sig í þess­um far­aldri,“ seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish á Vest­fjörðum, í um­fjöll­un um mál þessi í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: