Þrír íslenskir meðal stærstu fjárfesta

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Fyrirtækið er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins.
Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Fyrirtækið er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins.

Gildi-líf­eyr­is­sjóður er orðinn næst­stærsti hlut­hafi Icelandic Salmon AS, hins norska eign­ar­halds­fé­lags Arn­ar­lax, eft­ir útboð á nýj­um hlut­um, eins og bú­ist var við. Aðrir ís­lensk­ir líf­eyr­is­sjóðir eru ekki á lista yfir 14 stærstu hlut­hafa en vitað er að ein­hverj­ir þeirra keyptu hluti sem nú eru í vörslu hjá er­lend­um fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Þá eiga ís­lensk­ir fjár­fest­ar, vænt­an­lega eru líf­eyr­is­sjóðir þar á meðal, í verðbréfa­sjóðum Stefn­is, sjóðastýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is Ari­on banka, sem tók þátt í útboði Icelandic Salmon.

Viðskipti hóf­ust með hluta­bréf Icelandic Salmon á Merk­ur-markaði kaup­hall­ar­inn­ar í Osló í fyrra­dag og hringdi for­stjóri kaup­hall­ar­inn­ar bjöllu til merk­is um það. Upp­hafs­verðið var 105 krón­ur norsk­ar á hlut, sem svar­ar til 1.600 ís­lenskra króna. Verðið hækkaði í 110 krón­ur fyrsta dag­inn í tölu­verðum viðskipt­um en lækkaði snar­lega aft­ur í gær og stóð í rétt­um 100 krón­um við lok viðskipta. Flest­ar töl­ur í viðskipt­um kaup­hall­ar­inn­ar voru rauðar þenn­an dag­inn og fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in ekki und­anþegin því.

Fjór­falt fleiri hlut­haf­ar

Eft­ir útboðið eru um 370 hlut­haf­ar í eign­ar­halds­fé­lagi Arn­ar­lax en voru 84 fyr­ir útboðið. Hlut­haf­arn­ir eru því fjór­falt fleiri en var fyr­ir helgi.

Norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið SalM­ar á áfram meiri­hluta, 51,02%, en hlut­ur þess minnkaði um átta pró­sentu­stig vegna þess að það keypti ekki nýja hluti í útboðinu. Gildi er með 5,49% hlut og Gyða ehf., fé­lag Kjart­ans Ólafs­son­ar, stjórn­ar­for­manns Arn­ar­lax, á 3,23% og er þriðji stærsti hlut­haf­inn. Stefn­ir er í átt­unda sæti með 2,2% hlut. Aðrir hlut­haf­ar í hópi 14 stærstu eru norsk­ir eða alþjóðleg­ir fjár­fest­ar. Fé­lög Matth­ías­ar Garðars­son­ar, stofn­anda Arn­ar­lax, ná ekki inn á lista 14 stærstu en eitt þeirra var í 12. sæti fyr­ir útboðið.

Arn­ar­lax er stærsta fisk­eld­is­fyr­ir­tækið hér á landi.

Menn eru að vanda sig

Stefn­ir keypti hlut í Ice Fish Farm AS, norsku eign­ar­halds­fé­lagi Fisk­eld­is Aust­fjarða, í júní í tengsl­um við skrán­ingu fé­lags­ins á Merk­ur-markað norsku kaup­hall­ar­inn­ar og eiga sjóðir fé­lags­ins því hlut í tveim­ur stór­um fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um hér á landi sem bæði eru með skráð hluta­bréf í kaup­höll.

„Mér finnst lax­eldið hafa tekið út gríðarleg­an þroska á und­an­förn­um fimm árum. Þetta er grein þar sem menn eru að vanda sig og er um­hugað um að vinna í sátt við um­hverfið og sam­fé­lagið,“ seg­ir Jó­hann Georg Möller, fram­kvæmda­stjóri Stefn­is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: