Starfsmenntun HA í fiskeldi hlýtur 46 milljónir

Fiskeldi er sífellt vaxandi grein hér á landi og eykst …
Fiskeldi er sífellt vaxandi grein hér á landi og eykst stöðugt eftirspurn eftir hæfu starfsfólki. HA hefur hlotið þróunarstyrk til að móta starfsmenntun á sviði fiskeldis. mbl.is/Helgi Bjarnason

Há­skól­inn á Ak­ur­eyri hef­ur hlotið 46 millj­óna króna Era­smus+ styrk sem sam­starfsaðili í verk­efn­inu Bridges sem snýr að þróun starfs­mennt­un­ar á sviði fisk­eld­is, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá skól­an­um.

Þar seg­ir að um sé að ræða sam­starfs­verk­efni Nor­egs, Ísland, Finn­lands og Svíþjóðar, an það hófst 1. nóv­em­ber og leiða Norðmenn verk­efnið. En það fell­ur und­ir skil­grein­ingu CoVE verk­efna (Centres of Vocati­onal Ex­ellence) „þar sem fræðsluaðilar í starfs­mennt­un og fyr­ir­tæki mynda sam­an þekk­ing­arklasa á völd­um sviðum. Hug­mynd­in er að þátt­tak­end­ur í klas­an­um verði síðan leiðandi um mennt­un og þjón­ustu á sínu sviði inn­an Evr­ópu og veiti öðrum stofn­un­um, skól­um og fyr­ir­tækj­um ráðgjöf.“

Bridges var út­hlutað fjór­um millj­ón­um evra í heild, um 600 millj­ón­um ís­lenskra króna, þar af fær Há­skól­inn á Ak­ur­eyri 46 millj­ón­ir á fjór­um árum.

Era­smus+ er stefna Evr­ópu­sam­bands­ins um að efla mennt­un, þjálf­un, ung­menni og íþrótt­ir í Evr­ópu og er ráðstafað 14,7 millj­örðum evra, jafn­v­irði 2.400 millj­arða króna, til mála­flokks­ins.

Koma að hönn­un náms­efn­is

„Mik­il aukn­ing hef­ur verið í fisk­eldi á Íslandi og þá sér í lagi í sjókvía­eldi og hafa kröf­ur um mennt­un auk­ist mjög í sam­ræmi við þá aukn­ingu. Á þessu ári er áætluð heild­ar­fram­leiðsla í lax­eldi á Íslandi um 31.500 tonn og verðmæti um það bil 35 millj­arðar króna. Helstu hlut­verk Há­skól­ans á Ak­ur­eyri í verk­efn­inu verða að hanna ný verk­færi til miðlun­ar kennslu­efn­is og einnig að miðla þekk­ingu um ný­sköp­un í sjáv­ar­út­vegi til verk­efn­is­ins og upp­lýs­ing­um um verk­efnið og afrakst­ur þess til aðila í fisk­eldi á Íslandi,“ seg­ir í til­kynn­ingu skól­ans.

Þá mun Há­skól­inn á Ak­ur­eyri einnig koma að hönn­un náms­efn­is í fisk­eldi á há­skóla­stigi og sér um skipu­lag ráðstefna um nám í fisk­eldi þar sem sam­an munu koma fræðsluaðilar og fyr­ir­tæki í fisk­eldi.

Hug­mynda­fræði og skipu­lag Sjáv­ar­út­vegs­skóla unga fólks­ins, sem Sjáv­ar­út­vegs­miðstöð há­skól­ans hef­ur rekið, verður lagt til grund­vall­ar Fisk­eld­is­skóla unga fólks­ins þar sem ungt fólk á aldr­in­um 14-20 ára verður frætt um at­vinnu­mögu­leika í fisk­eldi.

Þátt­taka Há­skól­ans á Ak­ur­eyri er leidd af Guðrúnu Arn­dísi Jóns­dótt­ur, for­stöðumanni Sjáv­ar­út­vegs­miðstöðvar HA. Meðal sam­starfsaðila inn­an há­skól­ans má nefna Rann­veigu Björns­dótt­ur, for­seta Viðskipta- og raun­vís­inda­sviðs, og Auðbjörgu Björns­dótt­ur, for­stöðumann Kennslumiðstöðvar. Aðrir sam­starfsaðilar á Íslandi eru Fisk­tækni­skóli Íslands, Há­skól­inn á Hól­um og Arn­ar­lax ehf.

mbl.is