Fá lífræna vottun á lax

Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum …
Lífræn vottun fyrir laxeldi Fiskeldis Austfjarða í sjókvíum á Austfjörðum skapar fyrirtækinu ný sóknarfæri á markaði í Evrópu. mbl.is/Þorgeir

Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur fengið líf­ræna vott­un sam­kvæmt reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins. Trygg­ir þetta fyr­ir­tæk­inu eft­ir­sótt­an markað fyr­ir hágæða laxa­af­urðir í Evr­ópu.

Aðeins fjög­ur önn­ur fyr­ir­tæki í heim­in­um stand­ast þessa vott­un enda gilda um hana afar ströng skil­yrði, að sögn Jónatans Þórðar­son­ar, þró­un­ar­stjóra Fisk­eld­is Aust­fjarða. Þannig má ekki nota lyf eða önn­ur efni og aðeins hágæða fóður og aðrar vist­væn­ar aðferðir við eldi lax­ins. Sem dæmi má nefna að litar­efni fóðurs­ins er fram­leitt úr brúnþör­ung­um og er það jafn­framt afar öfl­ugt andoxun­ar­efni úr nátt­úr­unni. Raun­ar eru öll hrá­efni í fóðrið líf­rænt vottuð. Jónatan seg­ir að vissu­lega sé meiru til kostað en í hefðbundnu sjókvía­eldi en á móti fá­ist mun hærra verð fyr­ir afurðirn­ar.

Allt selt fyr­ir­fram

Fisk­eldi Aust­fjarða sel­ur megnið af fram­leiðslu sinni til versl­ana Whole Foods-sæl­kera­keðjunn­ar í Banda­ríkj­un­um. Það er gert með samn­ing­um til langs tíma þar sem verðið er ákveðið fyr­ir­fram. Tek­ur sölu­verðið því ekki þeim miklu sveifl­um sem verið hafa á heims­markaðsverði á laxi und­an­far­in miss­eri. Jónatan seg­ir að kröf­ur í líf­rænni vott­un ESB séu svipaðar og þær kröf­ur sem Whole Foods ger­ir en þó ekki eins. Seg­ir hann að vott­un­in skapi tæki­færi fyr­ir fyr­ir­tækið í Evr­ópu og víkki þannig markaðssvæðið út. Þar sem svo lítið fram­boð sé á líf­rænt vottuðum laxa­af­urðum og var­an eft­ir­sótt vegna gæðanna sé hægt að selja lax­inn fyr­ir­fram á góðu verði. Það hafi þegar verið gert, bæði til Evr­ópu og Jap­an, auk Banda­ríkj­anna.

Vott­un­in nær til sjókvía­eld­is Fisk­eld­is Aust­fjarða í Beruf­irði og Fá­skrúðsfirði og seiðastöðvar­inn­ar Ri­fóss í Keldu­hverfi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: