Leggur til innheimtu eldisgjalda í nýju frumvarpi

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarpsdrög til breytinga …
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarpsdrög til breytinga á hafnalögum. Þar er gert ráð fyrir töluverðri breytingu á tilhögun gjaldheimtu, svo sem upptöku eldisgjalds og heimildar til umhverfisafslátta. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heim­ilt verður að inn­heimta sér­stakt eld­is­gjald í höfn­um lands­ins af eld­is­fiski í sjókví­um sem um­skipað er, lestaður eða losaður í höfn­um fari svo að frum­varp Sig­urðar Inga Jó­hanns­son­ar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, um breyt­ingu á hafna­lög­um verði samþykkt. Það fel­ur einnig í sér heim­ild­ir til að veita um­hverfisafslætti á gjöld­um og inn­leiðingu lag­aramma um ra­f­ræna vökt­un hafna.

Drög frum­varps­ins hafa verið birt í sam­ráðsgátt stjórn­valda. Í grein­ar­gerð þess seg­ir að uppi sé ágrein­ing­ur um hvort höfn­um sé heim­ilt að styðja gjald­töku af fisk­eld­inu á grund­velli ákvæða laga um afla­gjald, en það er sagt í lög­um vera minnst 1,25% og mest 3% af heild­arafla­verðmæti. Þó skuli gjaldið vera minnst 0,70% af heild­arafla­verðmæti frystra sjáv­ar­af­urða.

„Í fram­kvæmd, þegar þessu ákvæði hef­ur verið beitt, hef­ur ekki ávallt verið not­ast við þau viðmið um hlut­fall heild­ar­verðmæt­is sem nefnd eru í þessu ákvæði. Uppi er ágrein­ing­ur um lög­mæti þess­ar­ar gjald­töku þar sem hún nái sam­kvæmt orðum sín­um til afla sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja en ekki til eld­is­fisks frá fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um. Að mati ráðuneyt­is­ins er þörf á því að leysa úr þess­ari réttaró­vissu,“ seg­ir í grein­ar­gerðinni.

Kær­an­leg gjald­taka

Hluti frum­varps­ins varðar inn­leiðingu á ákvæði Evr­ópu­reglu­gerðar um að setja ramma um veit­ingu hafn­arþjón­ustu og um sam­eig­in­leg­ar regl­ur um gagn­sæi í fjár­mál­um fyr­ir hafn­ir. Verður höfn­um sem eru inn­an sam­evr­ópska flutn­inga­nets­ins skylt að eiga sam­ráð við not­end­ur hafna um gjald­töku sína. Meðal ann­ars er mælt fyr­ir um að gjald­skrárákv­arðanir hafna inn­an sam­evr­ópska flutn­inga­nets­ins verði kær­an­leg­ar til Sam­göngu­stofu.

Hafn­irn­ar sem heyra und­ir hið sam­evr­ópska flutn­ingsnet eru Faxa­flóa­hafn­ir/​Sunda­höfn, Höfn­in á Seyðis­firði, Hafn­ir Fjarðabyggðar/​Mjó­eyr­ar­höfn, Reyðarf­irði, Höfn­in í Vest­manna­eyj­um og Land­eyja­höfn.

Þá er lagt til að öll­um höfn­um, sem falla und­ir gild­is­svið hafna­laga, verði heim­ilað að veita um­hverfisafslætti.

Rammi um vökt­un

Þá gera frum­varps­drög­in ráð fyr­ir nýju ákvæði um ra­f­ræna vökt­un hafna í þeim til­gangi að full­nægja skyld­um laga um per­sónu­vernd og meðferð per­sónu­upp­lýs­inga.

„Á mörg­um hafn­ar­svæðum er mynda­véla­eft­ir­lit og er al­gengt að raun­tíma­efni mynda­vél­anna sé birt á vefsíðum hafna svo báta­eig­end­ur geti fylgst með bát­um sín­um og veður­lagi. Skip­stjórn­ar­menn á leið til hafn­ar hafa einnig notað þess­ar upp­lýs­ing­ar til að sjá hvar laus pláss við hafn­ir séu,“ seg­ir í grein­ar­gerð.

Frest­ur til að skila um­sögn um frum­varps­drög­in er til og með 23. nóv­em­ber.

mbl.is