Vinna að hvítbók um vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland

Frá ársfundi Hafrannsóknarstofnunar 2020.
Frá ársfundi Hafrannsóknarstofnunar 2020. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Haf­rann­sókna­stofn­un vinn­ur nú að hvít­bók um um­hverf­is- og vist­kerf­is­breyt­ing­ar í haf­inu við Ísland og mögu­leg­ar sviðsmynd­ir eða af­leiðing­ar áhrifa lofts­lags­breyt­inga.

Vinn­an er unn­in að frum­kvæði Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, en ráðherra gerði grein fyr­ir vinn­unni í ávarpi á árs­fundi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á föstu­dag. Áformað er að skýrsl­an liggi fyr­ir í apríl á næsta ári, eft­ir því sem seg­ir í til­kynn­ingu. 

Í skýrsl­unni verður m.a. tek­in sam­an grein­argóð sam­an­tekt um þróun um­hverf­is­breyt­inga, stöðu þekk­ing­ar á þeim breyt­ing­um og þekk­ingu á sam­spili um­hverf­is­breyt­inga og ólíkra þátta. Sér­stak­lega verður litið til teg­unda sem hafa orðið fyr­ir mikl­um áhrif­um af breyttu um­hverfi. Þá verður einnig fjallað um mögu­leg­ar sviðsmynd­ir varðandi lík­lega þróun á vist­kerf­um hafs­ins.

mbl.is