Hafa hlotið 433 milljónir í rannsóknastyrki

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Stofnunin tekur þátt í …
Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Stofnunin tekur þátt í 11 alþóðlegum rannsóknaverkefnum sem hlotið hafa styrki úr Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. mbl.is/sisi

Í gegn­um rann­sókna- og ný­sköp­un­ar­áætl­un Evr­ópu­sam­bands­ins (Horizon 2020) hef­ur Haf­rann­sókna­stofn­un fengið rúm­lega 433 millj­ón­ir króna í styrki á und­an­förn­um þrem­ur árum, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar.

Þar seg­ir að Haf­rann­sókna­stofn­un hafi „lagt aukna áherslu á alþjóðlegt rann­sókna­sam­starf á síðustu árum með um­sókn­um í sam­keppn­is­sjóði sem hafa skilað góðum ár­angri.“ Þá taka starfs­menn stofn­un­ar­inn­ar nú þátt í 11 alþjóðleg­um rann­sókn­ar­verk­efn­um sem hlotið hafa styrk úr Horizon 2020 en að þess­um verk­efn­um vinn­ur fjöldi vís­inda­fólks víðs veg­ar í Evr­ópu frá meira en 200 rann­sókna­stofn­un­um og fyr­ir­tækj­um.

Fjöl­breytt verk­efni

Meðal þeirra verk­efna sem Haf­rann­sókna­stofn­un kem­ur að er MEESO-verk­efnið þar sem ætl­un­in er að rann­saka vist­kerfi miðsjáv­ar­laga sem er á 100 til 1000 metra dýpi. Fram kem­ur í til­kynn­ing­unni að „meg­in­mark­mið verk­efn­is­ins er að auka þekk­ingu á magni, dreif­ingu, teg­unda­sam­setn­ingu, fram­leiðni og nýt­ing­ar­mögu­leik­um lyk­il­teg­unda í miðsjáv­ar­lög­un­um, og hlut­verki þeirra í kol­efn­is­bú­skap hafs­ins.“

Þetta til­tekna verk­efni skoðar ekki aðeins fiska held­ur nær það einnig til hrygg­leys­inga, „enda er talið að magn þeirra í miðsjáv­ar­lög­un­um sé um­tals­vert, jafn­vel af sömu stærðargráðu og fiska.“ MEESO verk­efnið hef­ur verið styrkt um rúm­ar 117 millj­ón­ir króna.

Annað verk­efni sem unnið er að er nefnt ECOTIP og er það sagt til þess fallið að „bæta skiln­ing okk­ar á or­sök­um, þol­mörk­um og af­leiðing­um af keðju­verk­un­um sem verða í vist­kerf­inu þegar farið er yfir þol­mörk þess og áhrif­um þeirra á líf­fræðileg­an fjöl­breyti­leika í Norður­höf­um. Verk­efnið mun fella líf­fræðileg­ar at­hug­an­ir inn í nálg­un að líf­fræðileg­um fjöl­breyti­leika sjáv­ar sem bygg­ir á eig­in­leik­um líf­vera og nota þá nálg­un til að tengja breyt­ing­ar á sam­fé­lög­um líf­vera við virkni vist­kerfa. Verk­efnið mun einnig kort­leggja líf­fræðileg­an fjöl­breyti­leika á norður­slóðum í fortíð og nútíð, ásamt viðbrögðum hans við ytri skil­yrðum.“

Fram kem­ur í til­kynn­ing­unni að mark­mið Horizon 2020 er að styðja við rann­sókn­ir og ný­sköp­un á öll­um fræðasviðum með það að mark­miði að auka sam­keppn­is­hæfni Evr­ópu, skapa störf og stuðla að því að fleiri góðar hug­mynd­ir kom­ist á markað.

mbl.is