Einn nú með meirihluta í tveimur eldisfyrirtækjum

Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði. …
Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði. Måsøval Eiendom AS hefur gert samning um kaup á öllum hlutum í Fiskeldi Austfjarða og mun þannig fara með ráðandi hlut í tveimur stórum fiskeldisfyrirtækjum á Austfjörðum, en fyrir fer félagið með 53,5% hlut í Löxum fiskeldi. mbl.is//Helgi Bjarnason

Norska fjár­fest­inga­fé­lagið Måsøval Eiendom AS hef­ur gert samn­ing við norsku sam­steyp­una Midt-Norsk Havbruk AS um kaup á öll­um hlut­um þess síðar­nefnda eða 55,6% í Ice Fish Farm AS sem er eign­ar­halds­fé­lag Fisk­eld­is Aust­fjarða. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Måsøval.

Måsøval mun þannig fara með ráðandi hluti í tveim­ur fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um á Aust­fjörðum, en fyr­ir­tækið á fyr­ir 53,5% hlut í Löx­um fisk­eldi ehf. Fisk­eldi Aust­fjarða og Lax­ar hafa þegar hafið sam­starf og standa sam­an að laxaslátrun hjá Bú­landstindi á Djúpa­vogi.

Sam­hliða kaup­un­um mun Måsøval selja Midt-Norsk Havbruk 12,19% hlut sinn í norska eld­is­fyr­ir­tæk­inu Norway Royal Salmon AS, en fjár­fest­inga­fé­lagið tók þátt í stofn­un Norweg­i­an Royal Salmon árið 1992 og kveðst í til­kynn­ing­unni hefja nýj­an kafla í sögu fé­lags­ins með viðskipt­un­um.

Mögu­lega helm­ing­ur leyfa á Íslandi

„Måsøval sá fram á tæki­færi til að kaupa þenn­an hlut í Ice Fish Farm AS, það var tæki­færi til þess að styrkja rekst­ur okk­ar og fjár­fest­ing­ar á Íslandi með slík­um hætti að við gát­um ekki hafnað því,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni og er vísað til þess að Fisk­eldi Aust­fjarða hafi út­gef­in leyfi fyr­ir fram­leiðslu sem nem­ur 20.800 tonn­um á Aust­fjörðum og að fé­lagið hafi sótt um frek­ari heim­ild­ir sem nema 16.800 tonn­um. Gert er ráð fyr­ir að leitað verði leiða til að efla sam­starfið við Laxa fisk­eldi enn frek­ar.

Lax­ar fisk­eldi hef­ur stefnt að um 16 þúsund tonna eldi í Reyðarf­irði og mun sam­an­lögð fram­leiðsla fyr­ir­tækj­anna tveggja, fái þau öll til­skil­in leyfi, geta orðið tæp­lega 54 þúsund tonn sem er ríf­lega helm­ing­ur þess há­marks­líf­massa sem Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur ráðlagt í sein­asta áhættumati. Þar er há­marks­líf­massi fyr­ir Ísland allt sagt 106.500 tonn.

Norska fjár­fest­inga­fé­lagið er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem hef­ur höfuðstöðvar sín­ar á Frøya, vest­ur af Þránd­heimi í Nor­egi. Fé­lagið á að fullu fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Måsøval Fiskeopp­drett AS sem mun fram­leiða um 17 þúsund tonn á þessu ári.

mbl.is