Stefnt að auknu samstarfi félaga

Fiskeldi Austfjarða er með heimahöfn á Djúpavogi.
Fiskeldi Austfjarða er með heimahöfn á Djúpavogi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Måsøval ger­ir ráð fyr­ir að leitað verði leiða til að efla sam­starf aust­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna Laxa fisk­eld­is og Fisk­eld­is Aust­fjarða. Norska fé­lagið á meiri­hluta hluta­fjár í Löx­um og hef­ur nú eign­ast meiri­hlut­ann í Fisk­eldi Aust­fjarða.

„Ég tel að þetta sé gríðarlega já­kvætt skref fyr­ir grein­ina í heild og okk­ur hér fyr­ir aust­an. Måsøval hef­ur verið kjöl­festu­fjár­fest­ir Laxa fisk­eld­is og stutt vel við bakið á okk­ur,“ seg­ir Jens Garðar Helga­son, fram­kvæmda­stjóri Laxa fisk­eld­is, spurður um áhrif kaupa norska fé­lags­ins á Fisk­eldi Aust­fjarða.

Styrk­ir fjár­fest­ing­una

Midt-Norsk Havbruk, dótt­ur­fyr­ir­tæki fisk­eld­is­sam­stæðunn­ar NTS, hef­ur átt meiri­hluta hluta­fjár í Fisk­eldi Aust­fjarða og Måsøval Eiendom AS á meiri­hlut­ann í Löx­um fisk­eldi. Måsøval átti hluta­bréf í Norway Royal Salmon, NRS, og Havbruks­in­vest AS og skiptu fyr­ir­tæk­in á þeim hluta­bréf­um og eign­ar­hlutn­um í Fisk­eldi Aust­fjarða. Þetta eru viðskipti upp á hátt í 20 millj­arða ís­lenskra króna. Þegar þau verða geng­in í gegn mun Måsøval eiga 55,6% hlut í Ice Fish Farm sem er norsk eign­ar­halds­fé­lag um Fisk­eldi Aust­fjarða og er skráð á Merk­ur-markaðnum í kaup­höll­inni í Osló og Midt-Norsk Havbruk fer út úr fé­lag­inu.

„Måsøval sá fram á tæki­færi til að kaupa þenn­an hlut í Ice Fish Farm AS, það var tæki­færi til þess að styrkja rekst­ur okk­ar og fjár­fest­ing­ar á Íslandi með slík­um hætti að við gát­um ekki hafnað því,“ seg­ir í frétta­til­kynn­ingu sem Måsøval sendi frá sér í gær­morg­un. Vísað er til fisk­eld­is­leyfa og um­sókna Fisk­eld­is Aust­fjarða.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: