Eldisgeirinn bindur vonir við bóluefni

Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis á Austfjörðum, kveðst búast …
Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis á Austfjörðum, kveðst búast við að markaðurinn fyrir eldisfiskinn taki við sér þegar bóluefni gegn kórónuveirunni kemst í dreifingu. mbl.is/Árni Sæberg

Útflutn­ings­verð á atlants­hafslaxi hækkaði í síðustu viku eft­ir að hafa lækkað síðustu vik­ur og verið langt und­ir því verði sem venju­legt hef­ur verið á þess­um árs­tíma und­an­far­in ár. Verðið hef­ur venju­lega hækkað á haust­in vegna góðrar sölu á aðventu og um jól en hækk­un­in hef­ur látið á sér standa í ár vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins.

Verðið var 44,89 norsk­ar krón­ur í síðustu viku, sam­kvæmt Nas­daq-verðvísi­töl­unni, sem svar­ar til rúm­lega 670 kr. ís­lenskra. Hækkaði meðal­verð á laxi af öll­um stærðum um 7,63% frá vik­unni á und­an. Var það langþráð hækk­un vegna þess að verðið hef­ur farið lækk­andi síðustu vik­ur.

Jóla­vertíðin er haf­in og venju­lega eru öll lax­eld­is­fyr­ir­tæki að slátra sem allra mestu á þess­um árs­tíma. Þau sem geta halda nú að sér hönd­um og geyma lax­inn í sjón­um í von um að verðið lag­ist.

Bú­ast við hækk­un eft­ir jól

„Við höf­um nán­ast engu slátrað í nóv­em­ber. Miðað við fram­virkt verð mun heims­markaðsverðið taka við sér fljót­lega eft­ir ára­mót­in. Við höf­um því fært slátr­un­ina að mestu yfir í janú­ar og fe­brú­ar,“ seg­ir Jens Garðar Helga­son, fram­kvæmda­stjóri Laxa fisk­eld­is á Aust­fjörðum.

Verðþróun eldislax eftir vikum.
Verðþróun eld­islax eft­ir vik­um.

Jens Garðar er þar að vísa til vænt­inga markaðar­ins. Sam­kvæmt Fish Pool er bú­ist við að verðið fari í rúm­ar 57 krón­ur í janú­ar og fe­brú­ar sem svar­ar til rúm­lega 860 króna ís­lenskra. Fari verðið í þá tölu er það samt lægra en það var á sama tíma á síðasta ári því það var hátt í 80 krón­ur norsk­ar í janú­ar.

„Þegar bólu­efni kemst í um­ferð og það fer að slakna á sam­komutak­mörk­un­um í Evr­ópu og hót­el- og veit­inga­húsa­geir­inn fer að taka við sér má bú­ast við að bjart­sýni auk­ist og markaður­inn taki við sér á nýj­an leik,“ seg­ir Jens Garðar.

Reiknað er með því að verðið lækki aft­ur næsta sum­ar, eins og venj­an er, en jafn­vægi kom­ist á árið 2022, sam­kvæmt sam­an­tekt Fish Pool á vænt­ing­um á markaði.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: