Halla Bára Gestsdóttir híbýlafræðingur og húsahvíslari býr ásamt eiginmanni sínum, Gunnari Sverrissyni ljósmyndara, og dætrum þeirra tveimur í dásamlegri íbúð í miðbænum. Halla Bára og Gunnar hafa búið og unnið saman síðan þau hnutu hvort um annað á dagblaðinu Degi á Akureyri fyrir fjölmörgum árum.
Hjónin hafa gefið út fjölmargar bækur en nýjasta bókin þeirra, Heimili, var að koma út. Í henni heimsækja þau áhugaverð íslensk heimili.
„Við höfum mjög gaman af því að mála og leika okkur með málningu. Eins og frammi – eins og þið eigið eftir að sjá – máluðum við 30 cm rönd upp á vegginn og okkur langaði alltaf að setja gyllta rönd. Við ákváðum að gera það núna og við erum mjög ánægð með það,“ segir Halla Bára.