Mótmæla „tilræði“ við villtan lax

Óánægju gætir með stór áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Óánægju gætir með stór áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Lands­sam­band veiðifé­laga mót­mæl­ir harðlega áform­um Fisk­eld­is Aust­fjarða hf. um 10.000 tonna fram­leiðslu á laxi í Seyðis­firði. Í harðorðri álykt­un seg­ir sam­bandið að eldi á norsk­um eld­islaxi í Seyðis­firði sé „til­ræði við villta laxa­stofna“.

Í álykt­unni seg­ir að sam­bandið taki und­ir mót­mæli veiðifé­laga í Vopnafirði og deili áhyggj­um Seyðfirðinga. „Tug­ir þúsunda ferðamanna koma til lands­ins ár hvert með farþega­skip­inu Nor­rænu. Ef áætlan­ir Fisk­eld­is Aust­fjarða hf. ganga eft­ir verður fyrsta sýn þess­ara ferðamanna opn­ar sjókví­ar­verk­smiðjur í sjón­um. Þessi sýn er í boði ís­lenskra stjórn­valda sem lagt hafa mikla áherslu á að kynna ís­lenska nátt­úru sem hreina og óspillta.“

Jafn­framt segja Lands­sam­tök veiðifé­laga að hug­mynd­ir um eldi gangi í ber­högg við mark­miðsákvæði laga um nátt­úru­vernd. „Einkum er vísað til þess að mark­mið lag­anna er m.a. að vernda líf­fræðilega fjöl­breytni og tryggja þróun ís­lenskr­ar nátt­úru á eig­in for­send­um. Með því að staðsetja sjókvía­eldi í Seyðis­firði er gengið gegn þessu mark­miði enda ljóst að villt­ir stofn­ar lax­fiska sem eiga heim­kynni í firðinum, sem og í öðrum aust­firsk­um ám, munu verða fyr­ir veru­lega nei­kvæðum áhrif­um af eld­isiðnaðnin­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: