Jóhanna Bríet Helgadóttir meistaranemi í grunnskólakennarafræðum var búin að gera margar tilraunir til þess að breyta um lífsstíl. Ekkert gekk til lengdar þar sem í grunninn vildi hún bara grennast. Í dag hefur Jóhanna Bríet aldrei verið jafn ánægð með sjálfa sig enda hætt að hugsa um vigtina og hvað öðrum finnst um hana.
„Í dag er ég 90 prósent á ketó-mataræðinu og hef náð góðum árangri. En það er fyrst og fremst vegna þess að hausinn er rétt skrúfaður á. Ég er ekki á ketó til þess að missa kíló, þótt það sé auðvitað bónus,“ segir Jóhanna Bríet.
Jóhanna Bríet var búin að prófa ýmislegt áður en hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Hún var meðal annars búin að prófa herbalife, lágkolvetnakúrinn og að telja hitaeiningar og þar með vigta ofan í sig allan mat.
„Þetta gekk allt ágætlega meðan á því stóð en þegar maður gerir lífsstílsbreytingu þarf hugarfarið að fylgja með. Á þessum tíma fylgdi það ekki með. Ég var á þessum mataræði til þess eins að grennast. Ég vildi verða grönn til þess að geta keypt mér flott föt. Því með nokkur aukakíló var óhugsandi fyrir mig að klæðast í takt við tískuna og minn smekk.“
Þegar Jóhanna Bríet var í fæðingarorlofi með miðjubarnið sitt fyrir þremur árum fann hún hvað hún spáði mikið í útlitið og hvernig fötum hún klæddist.
„Ég eyddi svo miklum tíma í að rakka mig niður fyrir útlitið. Ég þráði ekkert heitar en að geta keypt þau föt sem mig langaði í en þorði það ekki vegna aukakílóanna. Mig dreymdi um að geta klæðst gallabuxum og flottum peysum. En nei, það var ekki í boði fyrir mig. Ekki nema vera í hlýrabol undir og draga hann niður að hnjám. Ég þorði ekki að láta sjást í rassinn og lærin því ég var með of stór læri og rass.“
Jóhanna Bríet segir sjálfsmynd sín allt öðruvísi núna.
„Í dag líður mér vel í eigin skinni og ég hef oft sagt að það sé lykillnin að góðum árangri. Ég er búin að koma öllum hólkvíðu kjólunum mínum út úr fataskápnum, búin að kaupa mér fullt af flottum buxum, stuttum peysum og skyrtum. Hlýrabolirnir mínir fengu einnig að hverfa ofan í ruslatunnuna.“
Jóhanna Bríet klæddist aðallega leggingsbuxum og víðum bolakjólum sem voru yfirleitt nokkrum númerum of stórir. Með þessu hélt hún að hún gæti falið líkama sinn.
„Einn daginn tók ég mjög mikilvæga ákvörðun fyrir sjálfa mig sem hefur gjörbreytt líðan minni gagnvart sjálfri mér. Ég ákvað að hætta að fela líkamann í alltof stórum fötum, enn fremur að hætta að fela líkamann í fötum sem mig langaði ekki einu sinni að klæðast. Ég á rétt á að vera í þeim fötum sem mig langar að vera í. Í dag klæði ég mig nákvæmlega eins og mig langar til þess að klæða mig. Það er svakalega mikið frelsi.
Það er ekki hægt að líkja andlegu heilsunni í dag við það hvernig hún var fyrir þremur árum. Það eitt að hætta að spá í hvað öðrum finnst er svo mikill léttir.“
Það er mikil áhersla lögð á að vera í kjörþyngd og oftar en ekki mælir fólk hamingju sína á vigtinni. Jóhanna Bríet er löngu hætt að gera það.
„Orðið kjörþyngd er nokkuð sem ég var búin að vera með á heilanum síðan ég var mjög ung. Þetta er svo meiðandi og mannskemmandi orð. Þyngd er enginn mælikvarði á útlit eða heilbrigði. Hamingjan fæst ekki með því að vera í kjörþyngd. Hamingjan fæst með því að líða vel í eigin skinni og lifa í sátt við sjálfan sig.“
Jóhanna Bríet er deilir uppskriftum sem hún eldar á instagramsíðu en hún segist hafa mikla þörf fyrir að vera skapandi í eldhúsinu. Hún fær líka útrás fyrir sköpunarþörfina í handavinnunni á instagramsíðunni Knit By Bríet. Það kemur því kannski ekki á óvart að Jóhanna Bríet leggur áherslu á textílmennt í meistaranámi sínu og starfar sem heimilisfræðikennari.
Húnt hvetur fólk að lokum til að hætta að spá í hvernig það lítur út og hvað öðrum finnst um fataval þess. „Kaupið föt sem ykkur langar í, sem ykkur langar að klæðast, og gerið það með stolti“ segir Jóhanna Bríet.