Efnagreining NMÍ flutt til Hafrannsóknastofnun

Starfsemi Efnagreiningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður lögð niður og erkefnin flutt …
Starfsemi Efnagreiningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður lögð niður og erkefnin flutt til Hafrannsóknastofnunar um áramót. Ljósmynd/Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið/Golli

Verk­efni og tækja­búnaður efna­grein­ing­ar Ný­sköp­un­ar­miðstöðvar Íslands (NMÍ) verða flutt til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sam­kvæmt sam­komu­lagi stofn­un­ar­inn­ar og Þór­dís­ar Kol­brún­ar R. Gylfa­dótt­ur, ferðamála-, iðnaðar, og ný­sköp­un­ar­ráðherra.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðsins að starfs­mönn­um efna­grein­inga NMÍ voru boðin störf hjá Haf­rann­sókna­stofn­un og áætlað er að form­legri sam­ein­ingu verði lokið um ára­mót.

„Með sam­ein­ing­unni mun Haf­rann­sókna­stofn­un taka við fram­kvæmd þeirra þjón­ustu­mæl­inga sem efna­grein­ing­ar [NMÍ] bjóða upp á í dag, taka við tækja­búnaði efna­grein­inga og vinna að því að þær mæl­ing­ar og próf­an­ir sem fær­ast til stofn­un­ar­inn­ar verði aðlagaðar að alþjóðleg­um gæðastöðlum og ferl­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, seg­ir ákveðna sam­legð mynd­ast við til­færsl­una sem býður upp á að stofn­un­in taki að sér fleiri verk­efni, enda fram­kvæm­ir stofn­un­in nú þegar ýms­ar efna­grein­ing­ar í sjó og í fersku vatni.

mbl.is