Töluvert minni afla var landað í nóvember

Samdráttur hefur verið í lönduðum tonnum, en samdráttur í aflaverðmætum …
Samdráttur hefur verið í lönduðum tonnum, en samdráttur í aflaverðmætum meiri. mbl.is/Sigurður Ægisson

Landaður afli ís­lesnka flot­ans nam 63.864 tonn­um í nóv­em­ber og er það 8% minni afli en í sama mánuði í fyrra, að því er fram kem­ur á vef Hag­stofu Íslands. Jafn­framt var afla­verðmæti í nóv­em­ber, metið á föstu verðlagi, 9,1% minna en í nóv­em­ber 2019.

Þar seg­ir að botn­fiskafli í mánuðinum hafi verið um 39,6 þúsund tonn sem er 4% minna en á sama tíma í fyrra. Þá var þorskafl­inn nam 23,6 þúsund tonn­um sem er 8% minni afli en sama mánuð í fyrra og auk þess svarð 8% sam­drátt­ur í karfa. Ýsu­afl­inn jókst hins veg­ar 21%.

Upp­sjáv­ar­afl­inn nam 22,6 þúsund tonn­um í nóv­em­ber en var 25,7 þúsund tonn í sama mánuði 2019 og er því smdrátt­ur­inn 12%. Sam­drátt­inn má fyrst og fremst rekja til þess að tölu­vert minni síld var landað í mánuðinum eða 24% minna. Ámóti kem­ur að 19% meira af kol­muna var landað nú en í fyrra.

Heild­arafli á tólf mánaða tíma­bili, frá des­em­ber 2019 til nóv­em­ber 2020, var 1.010 þúsund tonn sem er 3% minni afli en á sama tíma­bili ári fyrr.

mbl.is