Hættustig í gildi á Seyðisfirði

Facebook-síða Almannavarna

Rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Aust­ur­landi og Veður­stofu Íslands, lýstu yfir hættu­stigi vegna skriðufalla á Seyðis­firði á tólfta tím­an­um í gær­kvöldi. Um 50 hús voru rýmd und­ir Botna­brún í gær. 

Hús­in voru rýmd að skriður tóku að falla úr hlíðinni síðdeg­is í gær. Síðan hafa fleiri skriður fallið sem meðal ann­ars hafa náð niður í garða í efri hluta bæj­ar­ins á svæðum sem voru rýmd. Jarðveg­ur í neðri hluta hlíða er orðinn vatns­mettaður eft­ir mikl­ar rign­ing­ar síðustu sex daga og spáð er áfram­hald­andi NA-átt með úr­komu sem verður lík­lega að mestu snjó­koma til fjalla.

Um 120 manns yf­ir­gáfu heim­ili sín í gær og enn er tal­in hætta á skriðuföll­um. Gripið var til þess­ara aðgerða til þess að draga úr lík­um á slys­um á fólki en enn má bú­ast við eigna­tjóni. Enn geng­ur aur úr skriðusár­inu í Botn­um sem hef­ur náð inn í bæ­inn. Skriða féll síðast rétt um tíu­leytið í gær­kvöld en ekki er talið að hún hafi valdið mikl­um skemmd­um.

Óvissu­stigi vegna skriðuhættu var lýst yfir á Aust­fjörðum í gær og er enn í gildi. Skriðuhætta er á Aust­ur­landi vegna mik­illa rign­inga und­an­farið og jarðveg­ur í neðri hluta hlíða er orðinn vatns­mettaður. Skriður hafa fallið neðarlega í hlíðum á Eskif­irði, Seyðis­firði og við ut­an­verðan Fá­skrúðsfjörð. Spáð er áfram­hald­andi NA-átt með úr­komu.
Hættu­stigi er lýst yfir ef að heilsu og ör­yggi manna, um­hverf­is eða byggðar er ógnað af nátt­úru- eða manna­völd­um, þó ekki svo al­var­leg­ar að um neyðarástand sé að ræða.
mbl.is