Tundurskeyti með 300 kg af sprengiefni verður eytt

Tundurskeytið um borð í skipinu.
Tundurskeytið um borð í skipinu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Séraðgerða og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar hefur komið tundurskeyti sem kom í veiðarfæri togara úti fyrir Sandgerði fyrir á um 10 metra dýpi, hálfan annan kílómetra frá Sandgerðishöfn þar sem því verður eytt.

Talið er að um sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld sé að ræða. Vegna sjólags og myrkurs hefur verið ákveðið að eyða sprengjuhleðslunni á morgun við betri aðstæður, að því er kemur fram í tilkynningu.

Séraðgerða og sprengjueyðingarsveitin var kölluð út síðdegis í dag eftir að togarinn fékk tundurskeyti í veiðarfærin.

Stjórnstöð Gæslunnar óskaði eftir að skipið færi þegar í stað til hafnar í Sandgerði og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru sendir á staðinn. Þegar togarinn var kominn til hafnar var skipið rýmt og sprengjusérfræðingarnir undirbjuggu flutning tundurskeytisins frá borði með sérstökum flothólkum.

Að lokum var skeytið híft í sjóinn og dregið með slöngubát séraðgerðasveitar hálfan annan kílómetra frá höfninni.

300 kíló af sprengiefni

Á morgun verður það sprengt af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar. Talið er að um 300 kíló af sprengiefni séu í skeytinu og því líklegt að íbúar í Sandgerði finni fyrir sprengingunni. Afar sjaldgæft er að svo öflug tundurskeyti komi um borð í íslensk fiskiskip, segir í tilkynningunni.

Landhelgisgæslan hefur kallað út viðvörun á rás 16 þar sem bátar eru beðnir um að halda tveggja sjómílna fjarlægð og halda sig frá innsiglingunni í Sandgerðishöfn.

mbl.is