Hvað var Mariah Carey að spá þegar hún samdi jólalag aldarinnar?

Mariah Carey er drottning jólanna að margra mati.
Mariah Carey er drottning jólanna að margra mati.

Margir hafa keypt sér nýju bókina hennar Mariah Carey; The Meaning of Mariah Carey og eru að glugga í hvað hún var að hugsa þegar hún gerði eitt frægasta jólalag veraldar „All I Want for Christmas is You.“

„Mig langaði að syngja fallegt jólalag sem myndi minna á jólin eins og þau voru,“ hefur verið haft eftir henni í gegnum tíðina. 

Þótt Carey hafi ekki verið sérstaklega hamingjusöm á þeim tíma sem lagið kom fyrst út í upphafi tíunda áratugarins, meðal annars vegna erfiðra samskipta við Tommy Mottola sem seinna varð eiginmaður hennar, vildi hún gera lag sem myndi gera hana sjálfa hamingjusama. 

Eins og fram kemur á vef The New York Times sem gerði úttekt á bókinni hennar var Carey í erfiðu hjónabandi með Mottola, sem var stjórnsamur og ofbeldisfullur gagnvart henni. 

Carey lætur vinsældir lagsins ekki stíga sér til höfuðs enda er hún þekkt fyrir að taka meira mark á sér sjálfri en öðru fólki. 

Carey stendur alltaf fyrir sínu og er gaman að skoða lagið frá því á tíunda áratugnum og bera saman við nýlegri útgáfu þess.  


 

mbl.is