Óvenjuleg jól, en þau koma samt

Ólöf Margrét Snorradóttir, sóknarprestur á Egilsstöðum.
Ólöf Margrét Snorradóttir, sóknarprestur á Egilsstöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólöf Margrét Snorradóttir, sóknarprestur á Egilsstöðum, segir íbúa Seyðisfjarðar hafa sýnt einstaka samstöðu í hamförunum sem rignt hefur yfir þá.

„Fólk er enn þá að átta sig á þessu, þetta er mjög óraunverulegt fyrir mörgum. Þakklæti er samt fólki efst í huga, það varð ekkert manntjón og það skiptir öllu máli. Og þessi samhugur sem allir finna, að fólk er í þessu saman. Þau finna þennan stuðning sem þau mæta alls staðar,“ segir Ólöf.

Bæjarmenn hafi reitt sig á hvern annan fyrir sálrænan stuðning, en prestar svæðisins séu tilbúnir sem áður að taka á móti fólki.

„Það var dýrmætt að sjá. Fólk hafði virkilega þörf fyrir að hitta nágranna sína og vini, og fá þannig fréttir og stuðning. Að fá að segja hvað það var búið að upplifa, hvað það sá og heyra frá öðrum. Það var mikil hjálp í því fyrir marga,“ segir hún.

„Og það var ekkert endilega þannig að fólk var að koma til okkar prestanna, við gerðum okkur bara sýnileg hérna og svo kemur fólk bara seinna þegar það þarf að takast á við þetta allt saman.“

Samhugur íbúa Seyðisfjarðar hefur reynst gríðarlega mikilvægur í kjölfar áfallsins.
Samhugur íbúa Seyðisfjarðar hefur reynst gríðarlega mikilvægur í kjölfar áfallsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðrir aðilar hafa veitt sálrænan stuðning á svæðinu, og segir Ólöf starf þeirra vera mjög mikilvægt.

„Rauði krossinn er búinn að vinna hér frábært starf, það er stórkostlegt að sjá hvernig þau settu þetta allt upp til að aðstoða fólk bara á nokkrum mínútum.“

Hvað tímann framundan varðar eru skilaboð Ólafar þau að fólk skuli hlúa hvert að öðru.

„Jólin koma. Þau verða ólík því sem verið hefur, við vissum það, en kannski ekki að þau yrðu svona gjörbreytt hjá mörgum.“

mbl.is