Kaupa bát og fjölga starfsfólki á Tálknafirði

Vegna aukinna umsvifa í kjölfar nýrra þjónustusamninga við fiskeldisfyrirtækin Arctic …
Vegna aukinna umsvifa í kjölfar nýrra þjónustusamninga við fiskeldisfyrirtækin Arctic Fish og Arnarlax hefur Sjótækni á Tálknafirði fjárfest í nýjum Catamaran NABCAT 1510 DD frá Moen Marin í Noregi. Mynd/Moen Marin

Sjó­tækni á Tálknafirði und­ir­ritaði ný­verið þjón­ustu­samn­ing við fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in Arn­ar­lax og Arctic Fish og snýr samn­ing­ur­inn að þrif­um á nóta­pok­um í sjó, eft­ir­liti, köf­un­arþjón­ustu, þrif­um á kví­um og þjón­ustu sér­hæfðra báta., að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu.

Samn­ing­arn­ir eru til 2024  og er lagt upp með að gera samn­ing til lengri tíma þannig að Sjó­tækni gef­ist tæki­færi til að fjár­festa í frek­ari búnaði. Meðal helstu fjár­fest­inga á döf­inni er nýr vinnu­bát­ur, en þegar hef­ur verið samið um smíði hans í Nor­egi „Um er að ræða öfl­ug­an vinnu­bát sem sinnt get­ur þjón­ustu við fisk­eld­is­mann­virk­in og unnið við upp­setn­ingu nýrra kvía og fest­inga þeirra ásamt margskon­ar öðrum verk­efn­um sem Sjó­tækni fæst við,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Starfs­menn úr 15 í 20

Vinnu­bát­ur­inn er af gerðinni Cata­m­ar­an NABCAT 1510 DD frá Moen Mar­in í Nor­egi og er fimmtán metra lang­ur og tíu metra breiður. Þá seg­ir í til­kynn­ing­unni að bát­ur­inn sé „tví­bytna og bú­inn öfl­ug­um vél­um ásamt krön­um og búnaði til að setja út og strekkja kerf­is­fest­ing­ar fyr­ir kví­ar. Góð aðstaða verður fyr­ir áhöfn­ina um borð og mun bát­ur­inn auðvelda alla vinnu hjá Sjó­tækni við fisk­eldið. Von er á bátn­um til Íslands í mars.“

Sjó­tækni er sér­hæft þjón­ustu­fyr­ir­tæki fyr­ir hafn­sæk­inn iðnað upp­setn­ingu, eft­ir­liti, viðhaldi og þjón­ustu við ým­is­kon­ar mann­virki í sjó og vatni fyr­ir fyr­ir­tæki, stofn­an­ir og sveit­ar­fé­lög ásamt því að reka köf­un­arþjón­ustu. Aðal­starfs­stöð Sjó­tækni er á Tálknafirði og hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 15 manns en áætlað að þeim fjölgi í 20 manns næsta sum­ar.

Nýjum samningum fagnað við undirritun, frá vinstri Egill Ólafsson, Arctic …
Nýj­um samn­ing­um fagnað við und­ir­rit­un, frá vinstri Eg­ill Ólafs­son, Arctic fish, Sten Ove Tveiten, Arctic fish, Rolf Ørjan Nor­dli, Arn­ar­lax, Kjart­an Jakob Hauks­son, Sjó­tækni, Björg­vin Gests­son, Sjó­tækni og Gunn­ar Skúla­son Sjó­tækni. Ljós­mynd Neil Shir­an Þóris­son, Arctic fish. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is