Komu auga á risastórt jólatré á Ísafjarðardjúpi

map.is
map.is map.is

Það er sannkallaður jólaandi sem svífur yfir vötnum á Ísafjarðardjúpi ef marka má færslu Landhelgisgæslunnar á fésbókarsíðu hennar. Þar sést ansi óhefðbundin jólakveðja áhafnarinnar á björgunarskipinu Gísla Jónssyni hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Þegar varðstjórar Gæslunnar ætluðu að gaumgæfa ferils Gísla Jónssonar blasti við þetta líka fallega jólatré sem Gísli Jónsson hafði myndað með siglingaleið sinni. Þannig sendu þeir kveðju til félaga sinna í Gæslunni.

Landhelgisgæslan þakkar kveðjuna og segir hana merki um gott samband milli Gæslunnar og Landsbjargar.

Þegar varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skoðuðu feril björgunarskipsins Gísla Jóns frá Ísafirði blasti þessi...

Posted by Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard on Þriðjudagur, 22. desember 2020
mbl.is