Rýmingar endurskoðaðar eftir helgi

Seyðisfjörður eftir aurskriður.
Seyðisfjörður eftir aurskriður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áfram er hættustig í gildi á Seyðisfirði vegna skriðuhættu. Rýmingar verða endurskoðaðar eftir helgi, 28. desember. 

Engar tilkynningar hafa borist um skriður eða drunur á Seyðisfirði, en mælingar sem gerðar voru í morgun sýna að lítil sem engin hreyfing hafi orðið á upptakasvæðum skriðufalla frá því í gær, eftir því sem fram kemur í skýrslu almannavarnadeildar. 

Spáð er hríðarveðri á morgun sem færist yfir í rigningu með 15-20 metrum á sekúndu um miðjan daginn. Um kvöldið kólnar aftur með snjókomu. Af þessum sökum mun endurskoðun á rýmingarsvæðinu á Seyðisfirði ekki fara fram fyrr en mánudaginn 28. desember. Á meðan veðrið gengur yfir á morgun má búast við því að færð spillist á Fjarðarheiði og er fólk því beðið að fylgjast vel með færð á vegum og viðvörunum. 

Veðurstofa Íslands hefur ásamt samstarfsaðilum sett upp vefmyndavél sem beint er að sprungum sem mynduðust í gamla Oddsskarðsveginum á Eskifirði í síðustu viku. Auk þess eru fastpunktar mældir einu sinni á dag til þess að kanna hvort vart verði við hreyfingar í hlíðinni. Síðustu mælingar benda til þess að allt sé með kyrrum kjörum.

mbl.is