Á árinu 2020 voru millilandaferðalög aðeins fjarlægur draumur í huga margra. Heimsfrægar stjörnur hættu þó ekki að ferðast á milli landa og þótti fámennið á Íslandi fýsilegur kostur. Þó nokkrar stórstjörnur stigu fæti á Ísland á árinu sem er að líða.
David Beckham og Guy Ritchie
Fótboltastjarnan Beckham og leikstjórinn Ritchie komu til Íslands í júní til þess að veiða með vini sínum Björgólfi Thor Björgólfssyni í Haffjarðará.
J.K. Rowling
Höfundur Harry Potter-bókanna dvaldi á snekkju við Íslandsstrendur í sumar. Hún heimsótti að sjálfsögðu veitingastaðinn Galdur á Hólmavík og fór á Galdrasafnið.
Will Smith
Hollywoodleikarinn Will Smith var í tökum á Íslandi í haust og var Stuðlagili meðal annars lokað. Áður en hann hélt heim á leið gisti hann í þrjár nætur í aðalsvítunni á Retreat-hóteli Bláa lónsins.
Tom Cruise
Stórleikarinn er sagður hafa lent á Reykjavíkurflugvelli í sumar og flogið þaðan með þyrlu á Suðurland.
Terry Crews
Bandaríski leikarinn Terry Crews var á Íslandi í sumar. Hann fór fallegum orðum um landið á samfélagsmiðlum og var hæstánægður með íslenska skyrið.
Dan Brown
Breski metsölurithöfundurinn er hrifinn af Íslandi. Hann var staddur á landinu í haust og dvaldi meðal annars á Siglufirði.
Nikolaj Coster-Waldau
Game of Thrones-leikarinn danski var á landinu í vetur.
Ezra Miller
Hollwyoodleikarinn Miller er mikill Íslandsvinur en fékk þó slæma umfjöllun í fjölmiðlum í byrjun árs þegar hann virtist beita konu ofbeldi á myndbandi sem tekið var upp á útisvæði skemmtistaðar í miðbæ Reykjavíkur.
Gordon Ramsey
Stjörnukokkurinn var í laxveiði á Íslandi í sumar.