Frystihúsið á Seyðisfirði hefur vinnslu á ný

Gullver landaði á Seyðisfirði í morgun og er það fyrsti …
Gullver landaði á Seyðisfirði í morgun og er það fyrsti fiskur sem kemur til vinnslu í frystihúsinu þar frá skriðufalli 18. desember. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Ómar Bogason

Vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hófst á ný í morgun, en þar hefur starfsemi legið niðri frá því að stærðar skriða féll á bæinn 18. desember. „Fólk er afskaplega ánægt með að lífið sé aftur að færast í fyrra horf,“ er haft eftir Ómari Bogasyni, rekstrarstjóra frystihússins, á vef fyrirtækisins.

„Fyrstu dagana verður starfsfólkið flutt með rútu í gegnum skriðusvæðið að frystihúsinu, en reynt er að takmarka umferðina þar sem mest vegna þess að unnið er að því að breikka veginn í gegn og hreinsa svæðið,“ segir Ómar.

„Við fengum heitt vatn frá fjarvarmaveitunni í húsið í gær og þá var hafist handa við að þrífa og allt var gert spikk og span. Gullver NS kom síðan í morgun með tæp 100 tonn af blönduðum afla þannig að ekki skortir hráefnið. Nú landar Gullver við fiskvinnslubryggjuna en síðast þurfti hann að landa við Strandarbakka vegna þess að ekki var fært í gegnum skriðuna.“

mbl.is