Að öllu óbreyttu stefnir í að Eldisstöðin Ísþór hf. fái rekstrarleyfi fyrir 1.800 tonna hámarkslífmassa í landeldisstöð fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Matvælastofnun hefur unnið tillögu þess efnis og hefur hún verið birt á vef stofnunarinnar.
Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir seiðaeldi á laxi og regnbogasilungi sem veitir heimild til 1.800 tonna hámarkslífmassa, en áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi fyrir 600 tonna seiðaeldi.
Eldisstöðin Ísþór er í eigu Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða.