Til athugunar er að skrá Stolt Sea Farm sem rekur eldisstöð á Reykjanesi í kauphöllina í Ósló. Stolt-Nielsen Limited, móðurfélag Stolt Sea Farm, hefur ráðið fjármálafyrirtæki til að undirbúa skráninguna.
Stolt Sea Farm er með landeldi á flatfiski á fjórtán stöðum á Spáni, í Portúgal, Frakklandi og Noregi, auk eldisstöðvarinnar á Reykjanesi þar sem alin er senegalflúra.
Ekkert kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins um sölu á hlutabréfum eða hvort hlutafé verður aukið með útgáfu nýrra hluta.