Nepalski fjallagarpurinn Mingma, ásamt fleiri Nepölum, nálgast nú óðfluga tind K2 en þeir eiga aðeins 200 metra ófarna á toppinn samkvæmt færslu Nims á Facebook upp úr klukkan 8 í morgun.
Ef þeim tekst ætlunarverkið verða þeir fyrstir til þess að klífa K2 að vetrarlagi en John Snorri Sigurjónsson fjallgöngumaður komst í þriðju búðir á K2 í gær ásamt Muhammad Ali Sadpara og Sajid Ali, feðgunum sem fylgja honum. John Snorri greinir frá þessu á Facebook.
Á Facebook-síðu Mingma kemur fram að fyrsti leiðangur hans á fjall sem er meira en átta þúsund metrar að hæð hafi verið á Mt. Manaslu en hann hóf fjallamennsku árið 2006.
Hann hefur klifið Everest fimm sinnum, tvisvar norðan megin og þrisvar sunnan megin. Hann hefur tvisvar náð að standa á toppi K2 en auk þess hefur hann klifið Mt. Kanchenjunga (8.586 m), Lhotse (8.516 m), Makalu (8.463 m), ChoOyu (8.201 m), Dhaulagiri (8.167 m) auk þess að standa á tindi Mt. Manaslu fjórum sinnum, einu sinni á Nanga Parbat (8.125 m), Annapurna (8.091 m), Gasherbrum-I (8.068 m), Broad Peak (8.047 m), Gasherbrum-II (8.035 m).
Hér er hægt að lesa nánar um Mingma en fréttin hefur verið leiðrétt.
We are now 200m away to make Nepal n climbing community proud. #Nepalese_Team_Winter_K2 #imagine_Nepal #Sherpa #Pakistan #Nepal #Nepalese_Sherpa #Team #K2 #K2_winter
Posted by Mingma G on Laugardagur, 16. janúar 2021