Öll umferð um svæðið Hafnargötu á Seyðisfirði, þar sem stóra skriðan féll í desember, verður óheimil þangað til rýmingu í bænum verður aflétt. Þetta kemur fram í facebookfærslu frá lögreglustjóranum á Akureyri og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Í gærkvöldi voru ákveðin svæði bæjarins rýmd vegna úrkomuspár og skriðuhættu, rýming gildir fram á sunnudagsmorgun en þá verður staðan metin að nýju.