Framleiðsla á eldislaxi jókst um 27%

Sjókvíar Fáskrúðsfirði. Framleiðsla laxeldisins jókst töluvert á nýliðnu ári, eða …
Sjókvíar Fáskrúðsfirði. Framleiðsla laxeldisins jókst töluvert á nýliðnu ári, eða um 27%. Búist er við að sett verði nýtt met á þessu ári. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Íslensku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in fram­leiddu liðlega 34 þúsund tonn af laxi á nýliðnu ári sem er meira en sjö þúsund tonn­um meira en árið á und­an. Aukn­ing­in nem­ur 27% en þar sem sam­drátt­ur varð í fram­leiðslu á bleikju og senegal­flúru vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins jókst heild­ar­fram­leiðsla í fisk­eldi minna, eða um 20% milli ára. Útlit er fyr­ir að fram­leiðsla á laxi brjóti 40 þúsund tonna múr­inn á ár­inu 2021.

Vegna áhrifa kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins á markaði og lágs verðs fyr­ir jól­in frestuðu Lax­ar fisk­eldi og ef til vill fleiri fram­leiðend­ur slátrun á laxi og koma þær afurðir upp úr kví­un­um í ár og telj­ast til fram­leiðslu árs­ins 2021. Fram­leiðslan hefði því orðið meiri en þó varð, ef ekki hefði komið til þess.

Megnið af laxa­fram­leiðslunni kem­ur úr sjókví­um, eða 94%. Arn­ar­lax er sem fyrr lang­stærsti fram­leiðand­inn en Arctic Fisk sæk­ir á. Meg­in­hluti aukn­ing­ar­inn­ar varð því á Vest­fjörðum. Aust­firsku sjókvía­eld­is­fyr­ir­tæk­in tvö, Lax­ar fisk­eldi og Fisk­eldi Aust­fjarða, eru einnig að auka sína fram­leiðslu hægt og bít­andi.

Erfiðleik­ar á mörkuðum

Eldi á bleikju hér á landi hef­ur farið hægt vax­andi í mörg ár. Breyt­ing varð á því á síðasta ári. Jafnt stór­ir sem litl­ir fram­leiðend­ur hafa mark­visst haldið að sér hönd­um á ár­inu vegna áhrifa kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins á markaði, bæði hér heima og er­lend­is. Marg­ir litl­ir og meðal­stór­ir fram­leiðend­ur bleikju finna fyr­ir sam­drætti í komu ferðamanna þar sem bleikj­an hef­ur verið vin­sæll rétt­ur á hót­el­um og veit­inga­stöðum. Þá er snún­ara að koma bleikj­unni á er­lenda markaði. Laxa­markaður­inn virðist opn­ari og skil­virk­ari þótt vissu­lega hafi afurðaverðið lækkað.

Sam­drátt­ur var í fram­leiðslu á senegal­flúru af sömu ástæðum og í bleikju. Eng­inn eld­isþorsk­ur var fram­leidd­ur á síðasta ári en sú grein hef­ur fjarað út á síðstu sex til sjö árum.

Aft­ur á móti er fram­leiðsla á regn­bogasil­ungi far­in að aukast á ný eft­ir að hafa verið í lægð frá því á metár­inu 2017.

Met í út­flutn­ings­verðmæt­um

Kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn hafði þau áhrif að heims­markaðsverð á laxi lækkaði á síðasta ári. „Árið fór prýðilega af stað og verðið hélst til­tölu­lega hátt þar til far­ald­ur­inn fór að hafa áhrif. Þeirra gætti ekki síst á veit­inga­mörku­um sem skipta miklu máli fyr­ir fisk­eldið,“ seg­ir Ein­ar K. Guðfinns­son sem starfar að fisk­eld­is­mál­um hjá Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS).

Einar K. Guðfinsson.
Ein­ar K. Guðfins­son. mbl.is/​Hari

Hann seg­ir að Kína­markaður hafi lokast þegar leið á árið en þangað hafði farið tölu­vert af heims­fram­leiðslunni. Sú fram­leiðsla hafi í staðinn leitað til Banda­ríkj­anna og Evr­ópu. Þá hafi þreng­ing­ar í Banda­ríkj­un­um gert það að verk­um að stór fram­leiðslu­lönd, eins og til dæm­is Síle, sem nýtt hafi Banda­rík­in sem heima­markað, hafi sótt inn á Evr­ópu­markað. Allt hafi þetta orðið til þess að verðið hafi lækkað og það hafi haft veru­leg áhrif á fisk­eldið.

Í nýju frétta­bréfi SFS kem­ur fram að út­lit sé fyr­ir að út­flutn­ings­verðmæti fisk­eldisaf­urða hafi verið rúm­ir 29 millj­arðar á ár­inu 2020 á móti ná­lægt 25 millj­örðum á ár­inu á und­an. Er það met. Í krón­um talið er þetta 17% aukn­ing en rúm­lega 5% aukn­ing í er­lendri mynt. Þannig hef­ur auk­in fram­leiðsla náð að vega upp á móti verðlækk­un og vel það.

40 þúsund tonna múr­inn fell­ur

Gísli Jóns­son, dýra­lækn­ir fisk­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofn­un, og Ein­ar K. eiga von á áfram­hald­andi aukn­ingu fisk­eld­is á yf­ir­stand­andi ári. Gísli seg­ir að miðað við þau seiði sem eru í eldi í sjókví­um megi bú­ast við tæp­lega 40 þúsund tonna fram­leiðslu í ár. Sú fram­leiðsla sem færðist yfir ára­mót­in nú mun ef að lík­um læt­ur duga til að sprengja 40 þúsund tonna múr­inn en Gísli tek­ur þó fram að allt verði að ganga upp til þess að svo verði. Þar fyr­ir utan koma um tvö þúsund tonn af laxi úr land­eld­is­stöðvum.

Bú­ast má við tals­verðri aukn­ingu í fram­leiðslu á regn­bogasil­ungi því Háa­fell, dótt­ur­fé­lag HG, hef­ur í ár slát­un úr kví­um í Ísa­fjarðar­djúpi og kem­ur sú fram­leiðsla til viðbót­ar fram­leiðslu Há­brún­ar í Skutuls­firði og Matorku í Grinda­vík.

Það get­ur tekið tíma fyr­ir bleikju­eldið að jafna sig en það ræðst vænt­an­lega mest af markaðsaðstæðum.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: