Tengiltvinnprammar í eldið á Austurlandi

Tengiltvinn Nova 600-fóðurprammi er 30 metra langur og 12 m …
Tengiltvinn Nova 600-fóðurprammi er 30 metra langur og 12 m breiður. Fiskeldi Austfjarða fær í tvo slíka afhenta í vor.

Tveir stór­ir fóðurpramm­ar sem Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur fest kaup á frá Nor­egi og koma til starfa í vor verða raf­knún­ir, svo­kallaðir tvinnpramm­ar. „Tvinnpramm­ar eyða minni olíu. Það spar­ar út­gjöld og vinn­ur með um­hverf­inu,“ seg­ir Ólöf Rún Stef­áns­dótt­ir, gæðastjóri Fisk­eld­is Aust­fjarða.

Fóðurpramm­ar eru í notk­un all­an sól­ar­hring­inn, einn við hverja staðsetn­ingu sjókvía. Hvert lax­eld­is­fyr­ir­tæki er því með nokkra pramma í notk­un.

Hlaðið inn á raf­geyma

Raf­knún­ir fóðurpramm­ar ganga ein­göngu fyr­ir jarðefna­eldsneyti um fjór­ar klukku­stund­ir á sól­ar­hring. Á þeim tíma full­hlaða þeir raf­hlöður pramm­ans.

Áætlað er að með notk­un á raf­knún­um fóðurpramma minnki ol­íu­notk­un á eld­is­tíma einn­ar kyn­slóðar af laxi í sjókví um 80 þúsund lítra og sparnaður­inn nemi 23,5 millj­ón­um króna. Við það minnk­ar los­un á gróður­húsaloft­teg­und­um um 90%. Þá er betra fyr­ir starfs­menn að vinna um borð vegna þess að þar er minni hávaði og titr­ing­ur sem fylg­ir notk­un véla.

Þessi tækni er að ryðja sér til rúms í Nor­egi og fleiri fisk­eld­islönd­um. Marg­ir nýir pramm­ar eru með þessa tækni og einnig er verið að breyta eldri fóður­prömm­um. Þá er aukn­ing í að pramm­ar fái raf­magn beint úr landi.

Pramm­arn­ir sem Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur fest kaup á eru frá Sca­leAQ í Nor­egi og eru með stærstu fóður­prömm­um sem hingað hafa verið keypt­ir. Ann­ar þeirra er af gerðinni Nova 600, er 30 metra lang­ur, ber allt að 600 tonn af fóðri og er með mögu­leika á að gefa fóður sam­tím­is í sex­tán kví­ar.

Í Beruf­irði og Fá­skrúðsfirði

Verið er að smíða pramm­ana og er von á þeim hingað í byrj­un maí. Ólöf Rún seg­ir að þeir séu keypt­ir til að þjóna vax­andi starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Ann­ar verður notaður í Beruf­irði en hinn í Fá­skrúðsfirði.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: