Hagræðing Hafró bar fjárhagslegan árangur

Hafrannsóknastofnun flutti í nýjar höfuðstöðvar í fyrra. Á sama tíma …
Hafrannsóknastofnun flutti í nýjar höfuðstöðvar í fyrra. Á sama tíma var hagrætt í rekstri því sem nemur 229 milljónum króna. mbl.is/sisi

Hagræðing­araðgerðir Haf­rann­sókna­stofn­un­ar skiluðu til ætluðum ár­angri sam­kvæmt drög­um að yf­ir­liti um af­komu stofn­un­ar­inn­ar 2020 sem hef­ur verið birt á vefsvæði henn­ar.

Fram kem­ur að tekj­ur stofn­un­ar­inn­ar voru 4,2 millj­arðar á síðasta ári en það er 212 millj­ón­um króna minna en árið 2019. Hins veg­ar tókst að lækka kostnaðarliði um 229 millj­ón­ir króna og skilaði stofn­un­in já­kvæða af­komu sem nam 49 millljón­um króna.

Haf­rann­sókna­stofn­un fékk 3.115 milj­ón­ir króna á fjár­lög­um, þar af var 2.907 milj­ón­um ætlað í rekst­ur og 208 milj­ón­ir í fjár­fest­ing­ar. Tekj­ur voru 1.085 milj­ón­ir en þar af voru 279 millj­ón­ir króna vegna vöru­sölu, and­virði seldr­ar þjón­ustu skilaði um 78 milj­ón­um króna og ýms­ar aðrar tekj­ur og fram­lög voru um 728 milj­ón­ir.

Breytt­ar aðstæður

Þá seg­ir að kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn hafi þyngt rekst­ur stofn­un­ar­inn­ar og er meðal ann­ars vísað til þess að tvö leigu­verk­efni rann­sókna­skips­ins Árna Friðriks­son­ar féllu niður og nam tekjutap vegna þessa 140 millj­ón­um króna. Ann­ars veg­ar var um að ræða 30 daga leigu til norsku haf­rann­sókna­stofn­un­ar­inn­ar en hins veg­ar leigu á skip­inu í 8 daga í gegn­um Evr­ópu­verk­efnið Eurof­leet.

Þá féll ekki út nokk­ur túr þrátt fyr­ir að tekn­ir hafi verið upp breytt­ir verk­ferl­ar vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins, svo sem skimun áhafna sem og sótt­varn­ir um borða rann­sókna­skip­anna.

Árni Friðriksson við bryggju.
Árni Friðriks­son við bryggju. mbl.is/​Pét­ur Kristjáns­son

„Úthalds­dag­arn­ir urðu mun fleiri en ráðgert hafði verið eða 362 miðað við 326 árið 2019. Árna Friðriks­syni var haldið úti í 218 daga og Bjarna Sæ­munds­syni í 144 daga. Auk tveggja leigu­verk­efna sem féllu niður og áður var getið um varð sú breyt­ing á upp­haf­legri skipa­áætl­un að Árni Friðriks­son var notaður í haustr­allið vegna þess að ekki fékkst leigu­skip í það verk­efni. Skip stofn­un­ar­inn­ar voru því notuð mun meira í eig­in rann­sókn­ir en áætlað hafði verið,“ seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Viðgerð og flutn­ing­ur

Fram kem­ur að rann­sókna­skipið Bjarni Sæ­munds­son hóf árið 2020 í Slippn­um í Reykja­vík þar sem skipt var um vél­ar­blokk og þurfti að skera gat á síðu skips­ins til að ná út ónýtri vél­inni. „Bjarni var þó kom­inn í stand og sjó­fær á rétt­um tíma til að rann­saka ástand sjáv­ar í leiðangri sem hófst 10. fe­brú­ar. Bjarni endaði árið mjög vel en þann 17. des­em­ber voru liðin 50 ár frá smíði skips­ins. Veislu­höld vegna þess bíða betri tíma.“

Bent er á að  Árni Friðriks­son kom til hafn­ar 2. nóv­em­ber úr haustr­alli en það var síðasti leiðang­ur hans í fyrra. Farið var í viðhald á skip­inu enda rafall núm­er eitt bilaður. Í ljós kom að seg­ul­mögn­un­ar­vél um borð var ónýt og þurfti að vefja hana upp á nýtt. Einnig var farið í fyr­ir­byggj­andi viðhald á öðrum raföl­um.

Haf­rann­sókna­stofn­un flutti á síðasta ári í ný húsa­kynni í stærsta timb­ur­hús lands­ins að Fornu­búðum í Hafnar­f­irði, en stofn­un hafði verið með aðset­ur við Skúla­götu 4 frá 1965. Taf­ir urðu á flutn­ingn­um en í byrj­un júní sigldu loks starfs­menn með rann­sókna­skip­un­um frá Faxag­arði í Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar.

mbl.is