Lágt afurðaverð áhrif á afkomu Arctic Fish

Afkoma laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish var neikvæð síðasta ársfjórðung í fyrra, …
Afkoma laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish var neikvæð síðasta ársfjórðung í fyrra, en verð á mörkuðum hefur verið lágt. Stefnt er að frekari framleiðslu og skráningu í kauphöllina í Osló. mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish skilaði tapi á fjórða árs­fjórðungi 2020 sem nem­ur 0,41 evru á hvert fram­leitt kíló en slát­ur­magn tíma­bils­ins nam 2.988 tonn­um af laxi sem þýðir að niðurstaða (EBIT) árs­fjórðungs­ins hafi verið nei­kvæð um 1,2 millj­ón­ir evra jafn­v­irði 189 millj­óna ís­lenskra króna.

Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í til­kynn­ingu Norweg­i­an Royal Salmon (NRS) til norsku kaup­hall­ar­inn­ar, en fé­lagið fer með 50% hlut í Arctic Fish.

Þar seg­ir að enn sé gert ráð fyr­ir að Arctic Fish verði skráð á Merk­ur-markaðinn í norsku kaup­höll­inni á fyrsta árs­fjórðungi á þessu ári og hyggst NRS festa kaup á helm­ing nýs hluta­fé og þannig halda óbreyttu eign­ar­hlut­falli í fé­lag­inu.

Stefnt að 24 þúsund tonn­um

Fram kem­ur í til­kynn­ing­unni að niðurstaða síðasta árs­fjórðungs í fyrra hafi verið slök sök­um nei­kvæðrar verðþró­un­ar á mörkuðum í árs­fjórðungn­um. Velta fé­lags­ins á síðasta árs­fjórðungi síðasta árs nam 12 milj­ón­um evra, and­virði tæp­lega 1,9 millj­örðum króna, og námu skuld­ir við lok fjórðungs­ins 45 millj­ón­um evra. Hagnaður Arctic Fish fyr­ir­skatat og fjár­magnsliði nam 4,2 millj­ón­um evra, jafn­v­irði 661 millj­ón­um króna.

Heild­ar­fram­leiðsla fé­lags­ins nam 7.443 tonn­um á síðasta ári en gert er ráð fyr­ir að fram­leiðslan á þessu ári muni ná 12 þúsund tonn­um.  Stefnt er að því að fram­leiðsla fé­lags­ins nái 24 þúsund tonn­um árið 2025.

mbl.is