Bíða enn fregna af John Snorra

John Snorri glímdi einnig við K2 í fyrra.
John Snorri glímdi einnig við K2 í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Enn er beðið fregna af klifurkappanum John Snorra, sem klífur fjallið K2 um þessar mundir, en ekkert hefur heyrst frá honum í 18 klukkustundir.

Til stóð að John Snorri og feðgarnir Ali Sa­dp­ara og Sajid Ali yrðu komnir upp á topp fjallsins K2 í morgun að íslenskum tíma.

Eiginkona Johns Snorra, Lína Móey Björns­dótt­ir, tjáði mbl.is snemma í morgun að hún væri í sambandi við einn leiðang­urs­manna sem taldi þá að þre­menn­ing­arn­ir væru í um 8.300 metra hæð en K2 er 8.611 metr­ar að hæð. Sajid Ali þurfti þó að snúa við þar sem súr­efnisbúnaður hans virkaði ekki sem skyldi.

Í facebookfærslu á síðu Johns Snorra segir að kapparnir tveir séu afar sterkir fjallgöngumenn og eru aðstandendur því vongóðir um að þeir skjóti bráðlega upp kollinum á ný.


 

mbl.is