Gelda lax með genaþöggun

mbl.is/Helgi Bjarnason

Haf­rann­sókna­stofn­un og Bench­mark Genetics Ice­land (áður Stofn­fisk­ur) vinna með Mary­land-há­skóla í Baltimore í Banda­ríkj­un­um að þróun á nýrri aðferð til fjölda­fram­leiðslu á kyn­laus­um laxi til notk­un­ar í fisk­eldi, sam­kvæmt aðferð vís­inda­manna Mary­land-há­skóla.

Svo­kallaðri genaþögg­un er beitt á fyrstu stig­um lirfuþroska og felst aðferðin í að slökkva á genum í kyn­frum­um. Fisk­arn­ir verða eðli­leg­ir að öllu öðru leyti en því að þeir mynda ekki hrogn eða svil. Besti ár­ang­ur í rann­sókn­inni til þessa er að 70% hóps­ins urðu ófrjó en mark­miðið er að ná 100% ár­angri.

Bench­mark Genetics fram­leiðir þrílitna hrogn til út­flutn­ings til Nor­egs og fleiri landa en meðhöndl­un­in ger­ir lax­inn ófrjó­an. Hent­ar hann hins veg­ar ekki við all­ar aðstæður, til dæm­is í land­eldi sem er í mik­illi upp­bygg­ingu. Þess vegna er verið að þróa ýms­ar aðferðir við að gelda lax, þó hann sé áfram tví­litna. Ein af þeim er rann­sókn­in sem unnið er að hjá Hafró í Grinda­vík, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: