Herþyrla fann engin ummerki um John og félaga

John Snorri á K2.
John Snorri á K2. Ljósmynd/Aðsend

Þyrlur pakistanska hersins sem fóru í morgun að fjallinu K2 í leit að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á fjallinu hafa ekki fundið nein ummerki um hópinn enn sem komið er. 

Herþyrla flaug í allt að sjö þúsund metra hæð og hélt síðan aftur til borgarinnar Skardu hvaðan hún kom, án þess að finna nokkur ummerki um mennina. Aðstæður við tindinn og jafnvel í grunnbúðum eru slæmar að sögn Chhangs Dawa, sem staddur er í grunnbúðum fjallsins. 

Með John Snorra í för eru Muhammad Ali Sa­dp­ara og Juan Pablo Mohr frá Síle en Sajid Ali Sa­dp­ara, son­ur Alis, varð að snúa við í búðir þrjú í gær­morg­un þar sem súr­efniskút­ur hans virkaði ekki rétt. Þegar hann sneri við voru John Snorri og fé­lag­ar í síðustu hindr­un­inni upp á tind­inn, ís­veggn­um Bott­leneck. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá fjöl­skyldu Johns Snorra sást síðast til þeirra klukk­an 5 í gær­morg­un að ís­lensk­um tíma er Said sneri við í búðir 3. Þegar Said sneri við voru þeir í 8.211 metra hæð en K2 er 8.611 metr­ar að hæð. 

• Army's Helicopter made a search flight almost up to 7000m and returned back to Skardu, unfortunately, they can not...

Posted by Chhang Dawa Sherpa on Laugardagur, 6. febrúar 2021
mbl.is