Dóra Jóhanns búin að vera edrú í ár

Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri.
Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri greinir frá því á facebooksíðu sinni að hún sé búin að vera edrú í heilt ár. 

„Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa mikil neikvæð áhrif á líf mitt. En það reyndist þrautin þyngri að ná því. Botninn varð alltaf dýpri og dýpri og fyrir ári var ég búin að missa alla stjórn, líf mitt var komið í algjöra rúst og örvæntingin var rosaleg. Ég þurfti mikla hjálp, sem ég blessunarlega fékk, og ég er óendanlega þakklát öllu fólkinu sem hefur hjálpað mér og staðið við bakið á mér í þessu bataferli. Ég hefði aldrei getað þetta ein. Ég tárast og fæ hroll þegar ég horfi á ljósmynd af mér fyrir akkúrat ári. En ég kíki reglulega á þessa mynd til að minna mig á hvaðan ég er að koma. Ég hef breyst mikið og þroskast og líf mitt í dag er ótrúlega fallegt og gott og sífellt að koma mér á óvart. Ég hef fundið fyrir hamingju og friði sem ég vissi ekki að væri til! Ég er stútfull af þakklæti og vil koma því fram að ég er til staðar fyrir hvern þann sem vill hjálp við að verða edrú,“ segir hún á facebooksíðu sinni. 



mbl.is