„Lítil von um að John finnist á lífi“

John Snorri ásamt feðgunum Muhammad Ali Sa­dp­ara og Sajid Ali.
John Snorri ásamt feðgunum Muhammad Ali Sa­dp­ara og Sajid Ali. Ljósmynd/John Snorri

Leit að John Snorra, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á K2, undir stjórn pakistanska hersins, hefur staðið yfir í þrjá daga án árangurs. Ljóst er að þegar myrkur skellur á í fjallinu, um 14:00 að íslenskum tíma, er vonin um að þeir finnist á lífi mjög lítil því aðstæður á fjallinu eru mjög erfiðar og kuldinn mikill.

Sjaid Ali Sadpara, sonur Muhammads, sem var einnig hluti af hópnum sem ætlaði á tindinn, er nú kominn til byggða en hann sneri til baka á föstudaginn vegna bilunar í súrefniskút.  

Þetta kemur fram í tilkynningu sem fjölskylda Johns Snorra Sigurjónssonar hefur sent frá sér. 

„Við vitum að núna þegar myrkrið skellur á í fjallinu er lítil von um að John finnist á lífi. Hugur okkar er hjá John Snorra, Ali og J Pablo. Sajid er kominn til byggða og við erum þakklát fyrir að hann er öruggur,“ segir Lína Móey, eiginkona John Snorra.

Þakklát fyrir mikinn stuðning

Fram kemur, að fjölskylda Johns Snorra hafi verið samankomin á heimili hans til að fylgjast með aðgerðum og til að styðja hvert annað við þessar erfiðu aðstæður. Hún hefur fengið mikinn stuðning frá íslenskum stjórnvöldum sem hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að leitin sé eins umfangsmikil og hún hefur verið síðustu sólarhringa og komið á góðum samskiptum við stjórnvöld í Pakistan. Fjölskyldan er jafnframt þakklát fyrir mikinn stuðning og hlýhug frá fjölmörgum aðilum.

„Við þökkum öllum þeim sem hafa stutt við okkur, sent okkur hlýjar kveðjur og hvatningarorð. Við erum þakklát íslenskum stjórnvöldum, borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Geimvísindastofnun Íslands fyrir ómetanlegan stuðning og fagmennsku meðan á leitinni hefur staðið. Og einnig  þökkum við pakistönskum stjórnvöldum og öllum þeim sem tóku þátt í leitinni á fjallinu og hafa gert allt sem hægt er  til að finna John Snorra, Ali og Juan Pablo,“ segir Lína Móey.  

„Þetta er erfiður tími fyrir okkur fjölskylduna og við óskum eftir því að fá andrými til að takast á við þessa þungbæru stöðu.“

mbl.is