Starfsstöð Hafró í Neskaupstað í Múlanum

Múlinn - samvinnuhús í Neskaupstað.
Múlinn - samvinnuhús í Neskaupstað. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur tryggt sér starfsaðstöðu í Múl­an­um – sam­vinnu­húsi í Nes­kaupstað fyr­ir nýja starfs­stöð sína sem mun opna á næstu dög­um þar. 

Þetta kem­ur fram á heimasíðu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. 

Verið er að ganga ráðningu í stöðu tveggja starfs­manna á nýju starfs­stöðina sem aug­lýst voru ný­lega við upp­sjáv­ar­svið stofn­un­ar­inn­ar. 

Múl­inn – sam­vinnu­hús er í eigu Sam­vinnu­fé­lags út­gerðarmanna í Nes­kaupstað eða SÚN. Húsið hýsti áður versl­un­ina Nes­bakka.

Und­ir­bún­ing­ur og fram­kvæmd­ir við húsið hafa staðið yfir í ár og var það meðal ann­ars stækkað um 300 fm. Húsið var opnað um ára­mót­in og er hið glæsi­leg­asta. Fyrstu leigj­end­ur þess eru þegar flutt­ir inn.

Segja má að húsið verði eins kon­ar at­vinnuklasi en aðrir sem einnig hafa tryggt sér aðstöðu í hús­inu eru: Matís, Nátt­úru­stofa Aust­ur­lands, Aust­ur­brú, Deloitte, Nox health, Trackwell, Advania, Stapi líf­eyr­is­sjóður og Origo.

Haf­rann­sókna­stofn­un er fyr­ir með starfs­stöðvar á níu stöðum á land­inu en úti­búið í Nes­kaupstað er það fyrsta á Aust­ur­landi.

Múlinn hefur verið gerður upp og stækkaður um 300 fm. …
Múl­inn hef­ur verið gerður upp og stækkaður um 300 fm. Eft­ir stend­ur hin glæsi­leg­asta klasa­starfs­stöð. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un
mbl.is